Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apple AirPods Max þráðlaus heyrnartól - Space Grey

MGYH3ZMA
Upplifðu kraft tónlistarinnar með Apple AirPods Max þráðlausu heyrnartólunum sem eru með hágæðahljóm, frábæra hljóðeinangrun og þrívíddarhljóm sem bætir kvikmyndir.
Spatial audio, Siri
Virk hljóðeinangrun (ANC)
Smart Case
Allt að 20 klst rafhlöðuending
Adaptive EQ
Digital Crown
119.895 kr.
Upplýsingar

Enduruppgötvaðu galdra Airpods með Apple AirPods Max þráðlausu heyrnartólunum. Með virku hljóðeinangruninni geturðu notið hágæða hljóms án þess að umhverfið trufli þig og Spatial audio bætir kvikmyndir með þrívíddarhljóm. Ef þú vilt tengjast samfélaginu á ný er hægt að virkja Sound Highlight sem hleypir umhverfinu í gegn.

Virk hljóðeinangrun
Ekki láta umhverfishljóð trufla þig á meðan þú hlustar á tónlist. AirPods Max eru með 9 hljóðnemum, þar af eru 6 sérhæfðir í hljóðeinangrun, tveir samnýttir í hljóðeinangrun og símtöl en sá seinasti hlustar bara á röddina þína. Adaptive EQ stillir hljóminn og bætir tónlistina. Ef þú vilt hleypa hljóðum í gegnum þarftu bara að smella á einn takka.

Spatial audio
Bættu kvikmyndina eða þáttinn með AirPods Max. Heyrnartólin nema hreyfingar og breyta hljóm svo hann komi úr réttri átt. (Spatial audio virkar einungis í studdum forritum í iPad eða iPhone )

Hönnun og þægindi
AirPods lögðu grunninn að nýrri kynslóð heyrnartóla, en nú er komið að næsta skrefi. Hægt er að snúa hverju tóli og stilla lengd svo þau passi vel og sitji þægilega. Skelin er gerð úr léttu og endingargóðu áli á meðan ryðfríi stál ramminn er vafinn mjúkum efnum sem sameina styrk, þægindi og sveigjanleika. Stílhreina og nútímalega höfuðbandið dreifir úr þyngd og minnkar álag á höfuðið.

Digital Crown
Notaðu nákvæma Digital Crown hjólið til að stilla hljóðstyrk, skipta um lag, svara símtölum eða virkja Siri.

Pörun
AirPods Max tengjast iPhone eða iPad auðveldlega með því að leggja þau við hliðina á tækinu og smella á Connect á skjánum. Svo geturðu skipt óaðfinnanlega á milli tónlistar og símtala.

Rafhlaða
AirPods Max endast allt í allt að 20 klukkustundir með virkri hljóðeinangrun og Spatial audio. Eftir einungis 5 mínútna hleðslu endast þau í 1,5 klukkustndir. Með AirPods Max fylgir mjúkt og flott Smart Case hulstur sem lætur heyrnartólin í biðstöðu til að auka rafhlöðuendingu.

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
0194253345985
Framleiðandi
Apple
Hentar fyrir
Skrifstofu
Litur
Grár
ANC hljóðeinangrun
Þráðlaus
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.0
Tengi
Lightning
Hljóðstillir
Á heyrnartólum
Stærð (HxBxD)
18,73 x 16,86 x 8,34
Þyngd (g)
385
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður