Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Bosch Series 6 spanhelluborð PVS611FC5Z
Series 6 spanhelluborð frá Bosch er tilvalin í hversdags eldamennsku. Helluborðið er með gott hitaelement, CombiZone fyrir stærri potta, PowerBoost á öllum hellum.
Spanhelluborð
Spanhellan notar rafmagns leiðni til þess að hita í stað hefbundinna aðferða. Botninn á pönnunni/pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta sparar bæði orkunotkun og minnkar hita tap við eldun.
CombiZone
Hægt er að sameina tvær hellur í eina ef þörf er á stærra hellusvæði.
PerfectFry skynjari
Snjall hitaskynjari stjórnar hitanum á meðan á eldamennsku stendur svo máltíðir eldast við rétt hitastig allan tíman.
QuickStart
Helluborðið skynjar sjálfkrafa hvar potturinn/pannan er staðsett svo ekki þarf að stilla á sérstaka hellu.
Restart eiginleiki
Með því að halda takkanum í 4 sekúndur man helluborðið stillingarnar verið er að nota. Þetta sparar tíma ef þarf að elda eins mat seinna.
Power Boost
Nær hámark hitastigi á stuttum tíma með öllum hellum.
Tímastillir
Hægt er að stilla helluborðið til þess að slökkva á sér á tilteknum tíma.
Öryggi
Með ákveðnum takka er hægt að læsa helluborðinu svo litlar hendur geta ekki óvart kveikt á hellum eða brennt sig.
Pottar og pönnur
Mikilvægt er að nota potta og pönnur með ferromagnetic stáli til þess að helluborðið geti hitað upp málminn. Auðvelt er að komast að því hvort að potturinn eða pannan heima fyrir er með þessum eiginleikum með því að setja segul í botninn. Ef hann festist þá er hægt að nota hann á spanhelluborðið.
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og þarf því að hafa samband við fagaðila.