Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Apple iMac (2021) 24" borðtölva - Bleik
iMac 24" 2021 útgáfan er hönnuð í kringum M1 örgjörvann sem er einstakur vegna myndvinnslu og hljóðvinnslu. Tölvan er með 6 hátalara, tveir þeirra eru bassakeilur sem veita afbragðs hljóm fyrir frábæra bíómynda og tónlista upplifun. Einnig er hún gerð með umhverfisvænum og endurvinnanlegum efnum.
Apple M1 SoC
Tölvan er með sérhönnuðum SoC (system on a chip) frá Apple með átta kjarna fyrir vinnslu og sjö kjarna fyrir skjástýringu. Örgjörvinn er gerður með 5 nm hönnun og er með 16 billjón transistora sem bæta afkastagetu og nota minni orku. Ennfremur er M1 með Neural Engine og 8 GB deilt minni svo allt vinni hraðar og forrit geta deilt gögnum hraðar með Neural Engine, skjástýringunni og örgjörvanum. Undirbúðu þig fyrir ofurhraða myndvinnslu og leiki.
Retina skjár
14" Retina 4,5 skjárinn er með 4480 x 2520 upplausn og með yfir 11 milljóna pixla. Skjárinn er með 500 nits birtu og styður P3 litróf með einum milljarð liti. Hvort sem er verið að vinna með 3D hönnun, myndvinnslu á stórum myndum eða hágæða myndbönd þá tæklar hann það.
1080p FaceTime HD myndavél
iMac 24" tölvan er með 1080p FaceTime HD myndavél sem er besta myndavél á iMac hingað til. Hún tekur upp mjög skýr myndbönd með hjálp háþróaða myndvinnslu M1 örgjörvans.
Thunderbolt 3 / USB 4.0
iMac tölvan er með 2x Thunderbolt 3 tengi sem eru með allt að 40 Gbps gagnahraða sem virkar einnig sem tenging á milli fartölvunnar og annars jaðarbúnaðar. Tengið styður DisplayPort video fyrir allt að 6K skjá með 60 Hz eða tvo 4K DCI-P3 skjái með 60 Hz.
macOS Big Sur
Næstu kynslóðar stýrikerfið tryggir bestu notkunareiginleika fyrir. Margar smáar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri stýrikerfum. Forrit eins og Safari og Notes hafa verið betrumbætt fyrir daglega notkun auk Apple Music og Apple TV.
Aðrir eiginleikar
- WiFi 6, Bluetooth 5.0
- 2 x USB 4 / Thunderbolt 3 tengi
- 256 GB SSD
- 1080p FaceTime HD myndavél með Apple M1-myndvinnslu
- Hátalarakerfi með 6 hátölurum, þremur samvirkum hljóðnemum
- 3,5 mm heyrnartólatengi
Í kassanum
- Magic Keyboard með íslenskum stöfum
- Magic Mouse
- 143W rafmagnstengi
- Rafmagnssnúra
- USB-C í Lightning snúra