Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lego 2K Drive - Awesome Edition (PS4)
Velkomin í Bricklandia, gríðarlega stór opinn heimur Lego kappakstursævintýra. Kepptu hvar sem er, spilaðu með hverjum sem er, byggðu draumabílinn og kepptu á móta fjölda andstæðinga til að vinna Sky Trophy!
Í Lego 2K Drive keyrir þú umbreytanlegum bíl sem veitir þér frelsið til að keyra hratt á kappakstursbrautum, utanvegar og í opnum heimi.
Lego 2K Drive - Awesome Edition
- Awesome Edition inniheldur 2K drive og styður PS5 ásamt
- Aquadirt Racer Pack
- 1 árs Drive Pass: Inniheldur Season 1, 2, 3 og 4 DLC pakka. Awesome Pizza Vehicle. Útgáfutími DLC efnis verður birt í framtíðinni.
- 550 myntir
- Awesome Bonus Pack: Wheelie Stun Driver fígúra, Machio Beast bíll og Vehicle Flair
Lego kappakstur
Taktu við stýrinu og undirbúðu þig fyrir spennandi kappakstur og gífurlega stóran opinn heim. Spilaðu í spennandi Story Mode, skemmtu þér í smáleikjum, stökktu í einn kappakstur eða taktu þátt í Cup Series mótum.
Sky Trophy
Í Story Mode byrjar þú sem viðvaningur en verður sov heimsfrægur í keppnum gegn fjölda skemmtilegra andstæðinga. Með hverjum sigri kemst þú nær því að keppa við goðsagnarkennda ökumanninn Shadow Z.
Opinn heimur
Kannaðu stóra og spennandi heim Bricklandia, fullum af skemmtilegum persónum og skondnum áskorunum. Þjóttu framhjá gróskumiklum ökrum á göngustígum Turbo Acres, keyrðu utanvegar í eyðimörkum Big Butte County, skoðaðu ár Prospecto Valley og fleira.
Sérsmíði
Að byggja bíl í bílskúrnum er eins auðvelt og að setja saman Lego. Byggðu nýja bíla og báta frá grunni, breyttu bílunum þínum eða slakaðu á með leiðsögn og farðu með sköpunarverk þitt í bíltúr og deildu honum með heiminum!
Fjölspilun
Keyrðu um Bricklandia með vin í heimahúsið eða spilaðu með allt að sex félögum á netinu. Netspilun krefst PlayStation Plus áskriftar