Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Logitech Brio 4K Stream Edition vefmyndavél
Logitech Brio Stream vefmyndavél streymir í 4K gæðum við 30 ramma á sekúndu (FPS). Myndavélin ber kenni á andlit og stillir sig að því svo þú haldist alltaf í fókus. Einstaklega góð vefmyndavél og mætir þeim kröfum sem gerðar eru til streymis. Hvort sem þú ert að leita að frábærri vefmyndavél fyrir netspjall í gegnum forrit eins og Skype eða ef þú vilt streyma þá færðu frábæra notkun úr þessari vefmyndavél. Hægt er að draga úr skýrleika bakgrunns, setja upp mynd með myndavélinni á bakvið þig svo raunverulegt umhverfi haldist leynt, eða jafnvel hafa bakgrunn ekki til sýnis.
Andlits auðkenning: Skráðu þig inn á PC tölvuna þína með andlits auðkenningu. Þar sem myndavélin getur lesið úr og greint andlit mismunandi einstakling með innbyggðum IR skynjurum er möguleiki á að bæta öryggið við tölvu þína.
Tenging: Logitech Brio Stream notar USB 3.0 snúru sem tengist með USB Type-C tengi á myndavélinni í USB 3.0 eða 2.0 tengi á tölvunni.
Eiginleikar:
- 4K UHD 2160p myndbands streymi / upptaka / netspjall með 24 eða 30 ramma á sekúndu (FPS)
- 1440p myndbands streymi / upptaka / netspjall með 24 eða 30 ramma á sekúndu (FPS)
- Full HD 1080p myndbands streymi / upptaka / netspjall með 24, 30 eða 60 ramma á sekúndu (FPS)
- HD 720p myndbands streymi / upptaka / netspjall með 24, 30, 60 eða 90 ramma á sekúndu (FPS)
- 13 megapixla skynjari með tvíkjarna myndbandsörgjörva
- 65 °, 78 ° og 90 ° FoV stillingar með viðeigandi hugbúnaði
- 5x stafrænn aðdráttur í Full HD upplausn
- Auto focus frá 10 cm
- Tveir hljóðnemar með bergmáls- og hávaðavörn
Virkar með: XSplit, Attention, Skype, Zoom
Innifalið:
- Brio Stream vefmyndavél
- 12 mánaða skírteini fyrir Premium XSplit
- Festing
- USB-C í USB 3.0 snúra (1.5 m að lengd)
- Lok á myndavél til að tryggja öryggi þitt
- Myndavélastandur
- Ferðataska
- Leiðarvísir