Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Philips Hue öryggismyndavél - Með rafhlöðu

929003562802
Philips Hue öryggismyndavélin veitir rauntíma streymi og upptöku í 1080 Full HD upplausn. Öryggismyndavélin er með nætursjón og hreyfiskynjara. Einnig getur þú talað við þann sem er á hinum endanum eða fælt í burtu boðflennur með flóðlýsingu og sírenum.
Utandyra öryggismyndavél
1080 Full HD upplausn
IP65 ryk- og skvettuvörn
Er ekki með minniskortarauf
Hreyfiskynjari, 80 dB sírena og flóðljós
Þráðlaus
54.995 kr.
Upplýsingar

Philips Hue öryggismyndavélin gerir þér kleift að fylgjast með heimili þínu eða lóð í hvaða veðri sem er þar sem vélin er með IP65 ryk- og vatnsvörn og hreyfiskynjara. Myndavélin tekur upp í 1080 Full HD upplausn og er einnig með nætursjón sem veitir skýra mynd í myrkri.

Rafhlöðuending
Öryggismyndavélin endist mislengi eftir hitastigi hversu oft hún fer í gang á dag. Við 20 °C hita, með 10 gangsetningum sem leiða af sér 10 myndbönd sem eru 10 sekúndur á lengd, má gera ráð fyrir 3 mánaða rafhlöðuendingu.
Hægt er að bæta endinguna með því að breyta ýmsum stillingum eins og hversu löng myndbönd hún vistar og að láta hana hundsa svæði sem mikill manngangur er um. Það tekur einungis 5 klst að fullhlaða öryggismyndavélina.

IP65 ryk- og vatnsvörn
Með IP65 ryk- og vatnsvörn er öryggismyndavélin vel varin í slæmu veðri sem gerir hana frábæra sem öryggismyndavél utandyra, en að sjálfsögðu er hægt að nota öryggismyndavélina innandyra.

Hljóðnemi og hátalari
Myndavélin er með bæði hljóðnema og hátalara og því hægt að tala við fólk sem stendur í nálægð við myndavélina.

Flóðlýsing og sírena
Fældu í burtu boðflennur með því að setja í gang bjarta flóðlýsingu og háværa 80dB sírenu.

ATH til þess að geta vistað myndbönd þarf að greiða fyrir áskrift í Hue snjallforritinu, myndavélin er ekki með minniskortarauf. Nýjum myndavélum fylgir 30 daga prufuáskrift.

Eiginleikar
Myndavélar
Strikamerki
8719514492936
Framleiðandi
Philips
Litur
Hvítur
Wi-Fi stuðningur
Minniskortarauf
Nei
Myndbandsupptaka
1080 Full HD
Stærð (HxBxD)
7,7 x 12,9 x ? cm
Þyngd (g)
580
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður