Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Sennheiser Momentum 4 þráðlaus heyrnartól - Svört

SEMOMWIRELIV
Sennheiser Momentum 4 þráðlausu heyrnartólin varpa skýrum hágæða hljóm með Sennheiser Signature Sound. Minnkaðu umhverfishljóð hvar sem er með ANC virkri hljóðeinangrun.
Þráðlaus heyrnartól
Virk hljóðeinangrun (ANC)
42 mm hátalarar
Allt að 60 klst rafhlöðuending
Bluetooth 5.2
Sennheiser Signature Sound
52.995 kr.
Upplýsingar

Sennheiser Signature Sound tæknin tryggir það að Sennheiser Momentum 4 þráðlausu heyrnartólin varpi skýrum, hágæða hljóm með góðri aðgreiningu sem tónleikum. Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína í allt að 60 klukkustundir í senn á meðan Transparency hamur, tenging við mörg tæki, fjölhæft snjallforrit og þægilegt snið tryggja afbragðs þægindi.

ANC hljóðeinangrun
Með stillanlegri ANC hljóðeinangrun stjórnar þú hversu miklum umhverfishljóðum er hleypt í gegn. Einbeittu þér að tónlistinni með einangrun í hámarki eða hleyptu heiminum í gegn í bland við tónlistina.

Rafhlöðuending
Hlustaðu allann daginn með allt að 60 klukkustunda rafhlöðuendingu. Með hraðhleðslu þarf einungis að hlaða heyrnartólin í 10 mínútur svo þau endist sex klukkustundir.

Talþjónn
Kannaðu hvenær næsti strætó kemur, hlustaðu á skilaboð eða skiptu um lag. Með einum smelli er hægt að virkja talþjón til að fá allar upplýsingar sem þú þarft án þess að taka snjallsímann úr vasanum.

Einföld notkun
Auðvelt er að stjórna tónlist, hljóðstyrk eða símtölum með snertistjórn. Í snjallforritinu er hægt að breyta styrk hljóðeinangrunar, sérstilla hljóm og fleira. Ef heyrnartólin eru fjarlægð stöðva þau afspilun sjálfkrafa og slökkva á sér eftir 15 mínútna biðstöðu til að spara rafhlöðuna.

Sjálfvirkar hljómstillingar
Í snjallforritinu er eiginleiki sem vistar hljómstillingar þínar og metur hljómstillingar þínar og aðlagar hlustunarupplifunina að þínum smekk. Heyrnartólin styðja SBC, AAC, aptX og aptX víxlþjöppun.

Þægilegt snið
Með mjúku höfuðbandi og hágæða eyrnapúðum eru heyrnartólin þægileg, jafnvel eftir margra klukkustunda hlustun.

Í kassanum
- Momentum 4 heyrnartól
- Ferðahulstur
- USB-C hleðslusnúra
- 3,5 mm í 2,5 mm hljóðsnúra
- Millistykki fyrir flugvélar

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
4260752330435
Framleiðandi
Sennheiser
Hentar fyrir
Skrifstofu
Litur
Svartur
Rafhlöðuending (klst)
60
Hljóðstyrkur (dB)
106
Viðnám (ohm)
470
Tíðni (Hz)
6 - 22.000
Stærð hátalara (Driver)
42 mm
ANC hljóðeinangrun
Þráðlaus
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.2
Tengi
USB-C
Hljóðstillir
Snertistjórnun
Stærð (HxBxD)
19,5 x 18 x 4,63
Þyngd (g)
293
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður