Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Weber gasgrill Genesis E-415 - Svart

WE1500409
Weber Genesis E-415 er flott grill sem hentar fjölskyldum, með 4 ryðfría brennara og innfeldum hitamæli í lokinu.
Pottjárns grillgrindur - Weber Crafted
4 ryðfríir brennarar
Grillflötur 86cm x 48cm
14,1 kW
Innfeldur gráðuhitamælir
199.995 kr.
Upplýsingar

Weber Genesis E-415 er flott grill sem hentar fjölskyldum, með 4 ryðfría brennara og innfeldum hitamæli í lokinu. Grillið er með GBS grillgrind fyrir Gourmet BBQ kerfið frá Weber.

Gasgrill
Með gasi hefur þú meira vald á hitanum og getur því stýrt hitanum með meiri nákvæmni. Ýtir á einn takka og grillið er tilbúið til notkunar.

Rúmgóður flötur
86 x 48 cm grillflötur, meira en nóg til að elda ofan í gestina.

GS4 grill system
Einstaklega fljótt að hita sig og auðvelt að kveikja á. Fjórir öflugir gasbrennarar tryggja að maturinn þinn sé fullkomlega grillaður. Með rafkveiki nærðu eldinum í gang með einum hnappi.

Óbein grillun
Þegar þrír eða fleiri brennarar eru í grilli er hægt að nýta grillflötinn einstaklega vel. Óbein grillun hentar þegar um stærri eða þykkari kjöt er um að ræða. Þá nærðu jafnara hitastig um bitann sem gerir hann mýkri og safaríkari. Ef stærri bitar eru eldaðir beint undir eldi er hætta á vökvatapi og bruna.

Hliðarborð
Hliðarborð auka þægindi við grillun, auðvelt að umgangast grillið þannig þú átt ekki að þurfa að hlaupa inn með diska eða áhöld.

Flavorizer bragðburstir
Grillið er útbúið bragðburstum sem grípa vökva og olíur úr matnum og reykir þær til þess að viðhalda ekta reyktu grillbragði.

Innbyggður hitamælir í loki
Hafðu betri umsjón með grillinu og matnum með hitamælinum sem er innbyggður í lokið.

Á hjólum
Þar sem grillið er á hjólum er auðvelt að hreyfa það til og koma því fyrir þar sem þú vilt hafa það.

Þrif
Heilsa grillsins byggist á þrifum. Þrífðu grillið fyrir notkun. Kveiktu á öllum brennurum við háan hita og láttu standa í 10 mínútur. Föst fita, olía eða matarleifar kolast við hitann og einfaldar þrif á grilli. Svo þegar að grindin er orðin köld er hægt að nota burstan á hana til að ná auðveldlega burst óhreinindum.

Þrýstijafnari með grilli er ekki fyrir smellugas.

Eiginleikar
- 4 ryðfríir brennarar: 14,0 kW/h
- Rafstýrður kveikjari
- Pottjárns grillgrindur – „BBQ system“
- Ryðfrítt stál í bragðburstum(Flavorizer® bars)
- Postulín-glerungshúðað lok – svart
- Þykk álsteypa í botni og hliðum í loki
- Innfeldur gráðuhitamælir í loki
- Ryðfrítt stál í hliðarborðum
- Grillflötur: 86 x 48cm
- Efri grind: 84 x 15 cm
- 4 hjól—2 læsanleg
- Gaskútageymsla

Eiginleikar
Grill og aukahlutir
Strikamerki
0077924996665
Framleiðandi
Weber
Litur
Svartur
Fjöldi brennara
4
Grillflötur (cm)
86cm x 48cm
Grillgrind í loki
84cm x 15cm
Hliðarborð
Brennari á hliðarborði
Nei
Hitamælir í loki
Efni
Postulín-glerungshúðað lok, ryðfrítt stál í hliðarborðum, pottjárns grillgrindur, ryðfríar bragðburstir
Þrýstijafnari og slanga
Fylgir með
Stærð (HxBxD)
122 x 164 x 69 cm
Þyngd (kg)
79.5
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður