Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Xiaomi Mi TV Stick 4K

MITVSTICK4K
Xiaomi TV Stick 4K opnar upp nýja möguleika fyrir sjónvörp. Taktu TV Stick 4K með þér hvert sem er þar sem það er fyrirferðalítið og létt. Með 4K UHD upplausn, Dolby Atmos og Dolby Vision en einnig Android 11 með innbyggðum Google Assistant.
4K upplausn
Dolby Atmos og Vision
Android 11
Google Assistant talþjónn
Spilar myndir, þætti, tónlist og leiki
10.995 kr.
Upplýsingar

Breyttu hvaða snjallsjónvarpi sem er í 4K UHD afþreyingarstöð með Xiaomi TV Stick 4K margmiðlunar- og streymispilara. Tengdu Xiaomi TV Stick 4K með Micro USB, HDMI, Wi-Fi eða Bluetooth og horfðu á myndir, hlustaðu á tónlist eða spilaðu tölvuleiki í 4K upplausn. Dolby Vision og Dolby Atmos veitir enn betri hljómgæði og myndgæði og með Android 11 er einfalt að nálgast allar gerðir af afþreyingarefni. Auðvelt er að nota Xiaomi TV Stick 4K með innbyggðum Google Assistant talþjón.

Fyrirferðalítið
Auðvelt er að tengjast hvaða snjallsjónvarpi sem er með TV Stick 4K. Notaðu Wi-Fi, Bluetooth, Micro USB eða HDMI tengi og njóttu afþreyingar í betri gæðum.

4K Ultra HD upplausn
Tengdu TV Stick 4K við Full HD sjónvarp og horfðu á efni í fjórfalt betri upplausn. Einnig eykur TV Stick 4K gæði myndarinnar með betri birtuskilum og nákvæmari framköllun lita.

Dolby mynd- og hljóðtækni
Fullkomin bíóstemning hvar sem er. Með Dolby Vision og Dolby Atmos aukast myndgæði og hljóðgæði.

Android 11 stýrikerfi
Skoðaðu allt sem Android TV hefur upp á að bjóða. Fáðu tillögur um myndir, myndbönd, þætti, tónlist, leiki og fleira. Einnig er hægt að sækja snjallforrit fyrir Android með Google Play Store. Því meira sem þú kynnist Android TV, því meira munt þú njóta þess.

Google Assistant talþjónn
Eyddu minni tíma í að leita og meiri tíma í að njóta með Google Assistant talþjón. Talaðu við sjónvarpið þitt og láttu það finna fyrir þig efni sem þú vilt sjá eða fá tillögur um skemmtilegt efni. Til dæmis gætir þú beðið talþjóninn um að finna bestu myndir allra tíma eða gamanmyndir eða ákveðnar gerðir af leikjum og tónlist.

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
6971408155620
Framleiðandi
Xiaomi
Geymslurými (GB)
8
Fylgihlutir í kassa
HDMI framlengingarsnúra
Stærð (HxBxD)
10,68 x 2,94 x 1,54
Þyngd (g)
42.8
Samanburður