Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Bosch Series 4 þurrkari WTH85VE6SN - Hvítur
Bosch þurrkari WTH85VE6SN er frábær viðbót í þvottahúsið. Með 8 kg þurrkgetu, AutoDry tækni og SensitiveDry sem tryggir að bæði er allur þvottur þurrkaður vel og af nærgætni.
Þurrkgeta
Þurrkarinn er með 8 kg þvottaagetu og hentar fyrir fjölskyldur með börn og stærri heimili.
Þurrkkerfi
Veldu úr mörgum þægilegum kerfum fyrir allskonar tegundir af fötum eins og bómul, blandað, tímastillt kerfi bæði heitt og kalt, útivistarfatnað, dúnn, Super 40 mínútna þurrkun og skyrtur.
Varmadælutækni
Vilt þú vera umhverfisvænni og sparneytnari en geta þurrkað fötin þín á skilvirkan máta? Varmadælutæknin er notuð víða í skandinavíu sem umhverfisvæn leið til að hita hús. Sama tækni er nú sett í þurrkara. Meginatriðið í varmadælutækninni er hæfileikinn til að endurnýta umfram hita eftir að rakt loft hefur kólnað og þéttst. Með því minnkar orkunotkun til muna. Þessi tækni gerir þurrkaranum einnig kleift að þurrka fötin við lægra hitastig sem fer betur með þvottinn.
AutoDry
AutoDry tæknin nemur raka og hita í fötunum og stillir sig eftir þörfum. Þetta tryggir að fötin ofþorni ekki og skreppi síður saman.
SuperQuick 40
Ef þú ert að flýta þér kemur SuperQuick kerfið sér að notum. Það þurrkar nokkrar flíkur á einungis 40 mínútum.
SensitiveDry
Þurrkarinn er með rúmgóðri tromlu og bylgjuhönnun sem minnkar núning og fer vel með fötin þín.
LED skjár
Notendavænn skjár sem sýnir eftirstöðvar tíma sem og tímaræsingu á kerfi.
LED lýsing
Lýsing er í trommlunni á þvottavélinni svo engin hætt er á að neinn sokkur verði eftir.
Orkuflokkur
Þurrkarinn er í orkuflokki A ++, sem þýðir að hann er mjög umhverfisvænn og hjálpar þér að draga úr orkunotkun.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.