Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Electrolux eyjuháfur EFI739X
Haltu eldhúsinu fersku og lyktarlausu með 90 cm breiða eyjuháfnum frá Electrolux. Hann er með 740 m3/klst síun og hentugan Hob2Hood eiginleika og fjórar viftustillingar. SilentTech viftan getur unnið hljóðlátt og háfurinn er með fjögur LED ljós.
Sía
Eyjuháfurinn getur síað allt að 740 m3/klst sem hreinsar loftið fljótt og örugglega. Hægt er að velja á milli fjögurra hraðastillinga.
Breeze
Borðaðu í frið og ró á meðan vifta vinnur hljóðlátt. Kveiktu á Breeze stillingu þegar þú ert búinn að elda og viftan heldur áfram hljóðlátt í 60 mínútur.
SilentTech vifta
SilentTech viftan vinnur hratt og örugglega og er hljóðlát, jafnvel á fullum krafti.
Hob2Hood
Það hefur aldrei verið auðveldara að halda eldhúsinu reyklausu. Með Hob2Hood tækninni tengist helluborðið þráðlaust við háfinn í eldhúsinu og fer sjálfkrafa í gang eftir þörfum.
LED ljós
Fjögur orkusparneytin LED ljós lýsa upp eldamennskuna svo þú sjáir allt sem er að gerast.
Orkuflokkur
Eyjuháfurinn er í orkuflokki A+, sem er bæði orkusparandi fyrir þig og umhverfið.
Kolasía
Þessi eyjuháfur er samhæfur MCFB49 og MCFB48 kolasíum. Kolasía fylgir ekki með.