Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Electrolux PerfectCare 800 þvottavél EW8F8669Q9
Electrolux PerfectCare 800 þvottavél EW8F8669Q9 tryggir að fötin þín verða þvegin á faglegan máta og minnkar líkur á að fötin skemmist.
Þvottageta
Þvoðu nokkrar flíkur á fljótlegan máta eða þvoðu allan þvottinn í einu sem hefur safnast upp í óhreinakörfunni.
Þvottakerfi
Þvottavélin er búin ýmsum hagnýtum forritum sem geta þvegið öll föt. Til viðbótar við þvottakerfin eru einnig kerfi fyrir ullarkerfi, gufukerfi, lök og hör, svo og ofnæmisvalda. Ef þú hefur stuttan tíma þá er hægt að velja hraðkerfi sem tekur aðeins 20 mínútur.
AutoDose skömmtun
AutoDose kerfið reiknar út nákvæmlega hversu mikið magn af þvottaefni og mýkingarefni þarf fyrir ákveðið magn af þvotti, sem minnkar slit á fötum og lengir endingartíma þvottaefnisins.
SteamCare
Þvottavélin nýtir rakann í enda kerfis til að koma í veg fyrir að föt krumpist og svo það sé sem þægilegast að strauja eftir þrif.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.