Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Fitbit Charge 5 heilsuúr - Svart

FIT10003
Fitbit Charge 5 heilsuúrið er með stílhreina hönnun úr ryðfríu stáli, snertiskjá með lit og marga eiginleika sem henta heilbrigðum lífstíl. Notaðu háþróaða hjartsláttar- svefn-, streitu og hreyfingarmæla til að bæta lífstílinn.
Bluetooth
Allt að 7 daga rafhlöðuending
Púls-, svefn-, streitumælir o.fl.
Fitbit Pay
5 ATM vatnsvörn
21.495 kr.
Upplýsingar

Fitbit Charge 5 heilsuúrið er með stílhreina hönnun úr ryðfríu stáli og hjálpar þér að fylgjast með og bæta heilsuna. Úrið getur mælt hjartslátt, hreyfingu, svefn, streitu og tíðahring, og auðvelt er að tengjast snjallsímanum til að sjá tilkynningar og skilaboð beint á úlnliðnum.

Hönnun
Fitbit Charge 5 er með uppfærðri hönnun, skýrum lita snertiskjá með Always On eiginleika og ramma úr ryðfríu stáli. Það er vatnsvarið allt að 50 metrum svo þú getur notað úrið í sturtu eða í sundi. Heilsuúrið er með allt að 7 daga rafhlöðuendingu svo auðvelt er að fylgjast með hreyfingunni.

Hreyfi- og íþróttamælingar
Fitbit Charge 5 mælir og safnar gögnum úr æfingum og íþróttum. Úrið er með 20 mismunandi æfingastillingum, þar á meðal jóga, sund og hlaup. Úrið getur numið æfingar sjálfkrafa, auk þess mælir það skref og fjarlægð í rauntíma með innbyggðu GPS. Úrið gefur þér góða yfirsýn yfir ákafa æfinga á korti með smáforriti fyrir snjallsíma. 

Svefn og afslöppun
Til að æfingar skili árangri er hvíld, svefn og afslöppun mikilvæg. Þess vegna mælir Fitbit Charge 5 svefn og önnur gögn sjálfkrafa. Heilsuúrið getur numið léttan og djúpan svefn. Með streitumæli stýrðum af EDA nema er hægt að sjá líkamleg áhrif streitu. Ef niðurstaðan er slæm, gæti verið þess virði að hugleiða, gera öndunaræfingar eða fara í göngutúr.

Heilsa kvenna
Með hjálp Fitbit smáforritsins er hægt að fá yfirsýn yfir tíðahring, mæla einkenni, egglos og fleira.

Samstilling
Heilsuúrið er hægt að samstilla við snjallsíma til að greina gögn, deila, setja takmörk og fylgjast með mataræði. Einnig er hægt að fá tilkynningar, skilaboð og sjá hver er að hringja í úrinu. Charge 5 er samhæft iPhone og Android snjallsímum.

Aðrir eiginleikar
- NFC fyrir snertilausar greiðslur með Fitbit Pay
- Veður
- Bluetooth

Eiginleikar
Snjallúr
Strikamerki
0810038855868
Framleiðandi
Fitbit
Litur
Svartur
Rafhlöðuending
Allt að 7 dagar
Skjástærð (″)
1,0
Bluetooth
Staðsetningartækni
GPS
Þyngd (g)
29
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður