Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo Yoga Book 9i i7/16/1TB 13,3" 2-í-1 fartölva - Blá
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Lenovo Yoga Book 9i fartölvan er útbúin tveimur 13,3" PureSight OLED snertiskjáum sem opna nýjan heima möguleika. Skjáirnir nota háþróaða löm sem gerir þér kleift að skipta á milli mismunandi stillinga eftir hentugleika. Þú getur notað mörg forrit á sitthvorum skjánum eða lagt Yoga Book flata og notað hana sem teikniborð. Tölvan er með stílhreina málmhönnun sem er þunn og létt. Tölvan er einungis 1,34 kg að þyngd og 15,95 mm að þykkt.
Örgjörvi
10 kjarna Intel Core i5 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 45 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 16 GB hröðu LPDDR5X vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.
2-í-1 hönnun
Það besta úr fartölvum og spjaldtölvum í einum pakka. Snúðu skjánum til að skipta á milli hefðbundinnar fartölvunotkunnar og nýttu snertiskjáinn til fulls. Snúðu aukaskjánum frá þér og horfðu á myndbönd, spilaðu snertistýrða leiki eða skapaðu frábæra grafík.
Geymslupláss
1 TB M.2 NVMe PCIe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
Rafhlaða
4-cell 80 Wh lithium-polymer rafhlaðan endist allt að 15,88 klukkustundir í fartölvuham með einum skjá eða 10,85 klukkustundir i tveggja skjáa ham.
Penni lyklaborð og standur
Nýttu báða skjána, glósaðu eða teiknaðu með Active Pen. Veldu sniðið sem hentar þér best með Tidal Teal Folio standinum og skrifaðu hratt með Bluetooth lyklaborðinu.
Tengimöguleikar
- Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.1
- 3x Thunderbolt 4
Aðrir eiginleikar
- Bowers & Wilkins hátalarar
- 5 MP IR vefmyndavél