Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
LG tvöfaldur kæli- og frystiskápur LSR100
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Miðpunktur eldhússins. LG LSR100 tvöfaldi kæli- og frystiskápurinn býður upp á hæstu gæði sem völ er á í ísskápum í dag og einnig er skápurinn framsækinn í hönnun með nútímalegu viðmóti. Hægt er að opna skápinn og færa fram skúffur með skynjara ef þú ert með hendurnar fullar, með WiFi tengingu við snjalltæki og app, InstaView Door-in-Door hurð sem lýsist upp þegar bankað er á glerið og einnig hægt að opna hurð í hurðinni sem gefur þér flýtileið inn að helstum matvælum og drykkjum í hurðinni. Stál innvols sér til þess kælingin helst jöfn og gefur matvælum því lengri líftíma.
Innrétting: Einstaklega rúmgóður með 387 lítra kæli og 256 lítra frysti. Með fjórum hillum og tveimur grænmetisbökkum. Moist Balance Crisper skúffa heldur ávöxtum og grænmeti ferskari lengur og með LED lýsingu sérðu fullkomlega innihald skápsins. Custom Chill skúffa leyfir þér að stýra hitastigi eftir vild. Þar getur þú geymt þá drykki eða matvæli sem þú telur hentugra að hafa við sér hitastig, aðskilið hitastigi skáparins.
InstaView door: Einstök nýjung, InstaView hurðin verður gegnsær þegar bankað er á hana. Þannig þú getur séð inn í skápinn án þess að þurfa að opna hann.
MultiAirFlow: MultiAirFlow kæling (e. viftukæling) er nýrri leið til þess að ná fram fullkomnari og jafnari kælingu í öllum skápnum. Þökk sé fjölda vifta er köld bola í öllum skápnum sem tryggir jafnt hitastig og minnkar þannig matarsóun.
Sjálfvirk opnun: Hversu oft kemur maður heim með hendurnar fullar af innkaupapokum? Þá er gott að vita að hurðarnar opnast sjálfvirkt án þess að þurfa að snerta skápinn. Stingdu fætinum undir skápinn og skynjari opnar skápinn fyrir þig. Einnig eru hillurnar sjálfvirkar og gægjast fram þannig auðveldara sé að komast að þeim.
NoFrost: Þessi tækni kemur í veg fyrir hrím eða klakamyndun og uppsöfnun í frystinum. Það þarf aldrei að afþýða skápinn, hann sér um það verk sjálfur.
Vatns- og klakavél: Nú getur þú nálgast góða vatnið okkar í hurð skápsins og einnig klaka. Tengja þarf skápinn með vatnsslöngu og þarf því að gera ráðstafanir ef þarf eða staðsetja skápinn á réttum stað.
Smart ThinQ app: Einfalt er að stýra skápnum í símanum þökk sé WiFi tengingar og Smart ThinQ appsins. En að sjálfsögðu er það valkvætt og hægt er að nálgast allar stillingar í skápnum sjálfum.
Skjár: Hægt er að lesa upplýsingar um hitastig og annað í skjá í hurðinni.
20 ára ábyrgð: Þessi skápur er með 20 ára ábyrgð á pressunni, þú getur verið viss um að þessi endist til margra ára.