Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Ninja CREAMi Deluxe NC501EU ísvél
Með Ninja CREAMi ísvélinni getur þú reitt fram uppáhalds ísinn á nokkrum mínútum. Hafðu tilbúið ílát með hráefnum í frystinum og skelltu því beint í vélina.
Fylla, frysta, hræra og njóta!
Vélin er einföld í notkun. Eina sem þarf að gera er að fylla eitt af þremur ílátum með hráefni, frysta í 24 klst og skella ílátinu svo í vélina. Á nokkrum mínútum getur þú svo notið afrakstursins. Einnig er hægt að halda afgöngum frosnum og njóta seinna.
Eftir þínu höfði
Þú hefur fullt vald yfir því hvað fer í ísinn. Gerðu sælkeraís, sykurlausann, mjólkurlausann eða vegan ís! Þökk sé þremur BPA lausum ílátum getur þú haft allt að 2,1 L af hráefnum tilbúin í frystinum.
Bættu við auka bragði
Þegar að ísinn er tilbúinn getur þú bætti við t.d. ávöxtum eða nammi á einfaldann hátt. Settu hvað sem þig langar í út á ísinn, notaðu +Mix-In hnappinn og fylgstu með á meðan að vélin hrærir allt saman.
Miklu meira en bara ís
Ísvélin frá Ninja kemur útbúin 10 kerfum.
- Ice Cream
- Lite Ice Cream
- Sorbet
- Gelato
- Frozen Yogurt
- Frappe
- Frozen Drink
- Slushi
- Milkshake
- +Mix-In til að blanda nammi og ávöxtum við tilbúinn ís
Einföld í þrifum
Ekkert mál er að halda vélinni hreinni, en ílát, lok og blöð geta öll farið í uppþvottavélina.
Aðrir eiginleikar
- Stamir fætur
- 3x 709 ml ílát
- Tímamælir
- 10 kerfi