Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Philips 55" OLED708 OLED sjónvarp (2023)
Upplifðu frábær mynd- og hljómgæði með Philips 55" OLED708 4K 120 Hz OLED Ambilight snjallsjónvarpinu. Áhorf er bætt með 4K UHD upplausn ásamt líflegum HDR litum og P5 AI Perfect Picture Engine hámörkun. 120 Hz endurnýjunartíðnin veitir þér líka mjúkar hreyfingar sem nýtist vel í leikjum. Notaðu raddstýringu til þess að stjórna tækinu og snjallheimilinu.
Ambilight tækni
Philips tækin koma í sérflokki þökk sé Ambilight tækninnar. Á OLED807 tækjunum er fjögurra hliða Ambilight sem lætur skjáinn virðast enn stærri. Ambilight tæknin samræmir litina sem birtast á skjánum við lýsinguna og varpar þeim upp á vegginn bakvið tækið.
OLED tækni
OLED sjónvörp eru með frábær myndgæði og mun þynnri en LCD sjónvörp. Tæknin býður upp á einstaklega djúpa dökka liti og litróf sem aðeins OLED skjár getur gefið kost á.
4K HDR (High Dynamic Range)
HDR (High Dynamic Range) tækni tryggir að dekkri hlutar myndarinnar verði enn dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því meiri birtuskil og litbrigði í mynd.
P5 AI Perfect Picture Engine
Örgjörvinn sér til þess að myndefnið sýni sínar bestu hliðar með rauntíma myndbestun. Þökk sé gervigreind lærir örgjörvinn inn á myndefnið og getur bætt liti og myndgæði þess efnis sem í spilun er.
Dolby mynd- og hljómgæði
Dolby Vision og Dolby Atmos veita þér raunverulega heimabíó upplifun. Dolby Vision gefur þér skæra og raunverulega liti á meðan Dolby Atmos bætir hljómgæðin og lætur þér líða eins og þú sért í þínum eigin einkakvikmyndasal heima.
Google TV stýrikerfi
Stýrikerfi sjónvarpsins er Google TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns snjallforritum (e. apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum Google aðgangi. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.
Fjölrýmis tenging
Með DTS Play-FI er hægt að tengja Philips sjónvarpið við hátalara sem það styðja. Þar af leiðandi gætir þú farið fram í eldhús að ná í nammi án þess að missa af neinu.
Tilbúið í leikinn
Sigraðu hvern andstæðinginn á fætur öðrum með fínstilltri HDR mynd og fljótum viðbragðstíma. Sjónvarpið er með HDMI 2.1 tengimöguleika og 120 Hz endurnýjunartíðni sem bætir leikinn. Það er líka samhæft AMD FreeSync Premium og Nvidia G-Sync sem kemur í veg fyrir myndtruflanir.
Google Assistant
Með innbyggðum Google Assistant er ekkert mál að stýra tækinu þrátt fyrir að fjarstýringin finnist ekki. Einnig virkar tækið með Amazon Alexa.
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.