Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung tvöfaldur kæli- og frystiskápur RH68B8841B1/EF - Svartur
Tvöfaldi kæliskápurinn frá Samsung er með stórt og gott geymslupláss með Twin Cooling Plus og Metal Cooling - tækni sem heldur matnum á réttu hitastigi. Skápurinn er einnig með NoFrost eiginleika. Með Smart Food Show Case hönnun færð þú góðan aðang að mest notaða mat og drykknum.
Hönnun
Skápurinn er stílhreinn og hentar vel inn í hvaða eldhús sem er. Framhliðin er alveg flöt þar sem handföngin falla vel inn í skápinn til að halda stílhreinni hönnun.
Rúmmál
Innviði kæliskápsins er snilldarlega hannað svo nóg pláss er til fyrir matvæli og drykki. Kæliskápurinn er með allt að 403 lítra rúmmál og frystiskápurinn er allt að 224 lítra.
Twin Cooling Plus
Háþróuð Twin Cooling Plus tækni býður upp á sitthvort kælikerfið fyrir frystinn og kælirinn sem kemur í vegfyrir að matarlykt og annað blandist saman sem eykur endingartíma matvæla.
Metal Cooling
Aftast í skápnum er málmplata sem heldur jöfnu hitastigi inn í skápnum jafnvel þó hann sé opnaður með aðeins +/- 0.5°C mun.
Twin Cooling Plus
Tvær viftur tryggja að kalt loft dreifir sér jafnt um allar hillur skápsins sem heldur matnum ferskum lengur.
Digital Inverter tækni
Pressan í skápnum er stjórnuð með stafrænni tækni sem minnkar álagið á pressuna eftir þörfum sem sparar orku, lengir endingartíma og minnkar hljóð.
NoFrost
Sjálfvirk afhríming, gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afhríma skápinn þar sem hrím myndast ekki innan á hann.
Klaka- og vatnsvél
Í þessum tvöfalda kæli- og frystiskáp er innbyggð klaka- og vatnsvél.