Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Smeg tvöfaldur kæli- og frystiskápur FQ55FNDF - Svartur
Kæli- og frystiskápurinn frá Smeg er tvöfaldur með NoFrost og Fresh Zone sem heldur matnum ferskum lengur. Með Multiflow kerfinu haldast matvælin á jöfnum hitastigi.
Rúmmál kælis
Skápurinn er með nóg pláss fyrir hvaða mat sem er, eða allt að 387 lítra rúmmál. Auk þriggja gler hillna þá er skápurinn með sér skúffur fyrir grænmeti og annan ferskan mat. Skúffurnar heldur rakastiginu jöfnu sem lengir líftíma matvæla. Hægt er að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur í Fresh Zone skúffunni við lægra hitastig en annarsstaðar í skápnum. Stórar hillur fyrir flöskur eru í hurðinni fyrir mjólk, safa og flöskur.
Hraðkæling og frysting
Ef þörf er á að kæla/frysta mikið af matvælum sem eru við stofuhita þá er hægt að kveikja á hraðkælingu. Þessi stilling flýtir fyrir kælingu matarins.
Multiflow
Þetta kerfi bætir loftflæði skápsins, stillir hita- og rakastig.
Led lýsing
Sterkt LED ljós er í skápnum sem er orkusparandi.
Skjár
Hægt er að sjá hitastigið í kælinum og frystinum á stórum skjá sem er á skápnum eða breytt stillingum eftir vild.
Frystir
Með allt að 152 lítra rúmmál er nóg pláss fyrir kjöt, pizzu, ís, grænmeti eða brauð.
NoFrost
Sjálfvirk afhríming, gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afhríma skápinn þar sem hrím myndast ekki innan á hann.