Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
TCL 85" QLED770 QLED sjónvarp (2023)
Uppáhalds myndirnar þínar, þættir og leikir færast á hærra plan með TCL 85" QLED770 4K snjallsjónvarpi. Samsetning af mismunandi tækni eins og Quantom Dot, AiPQ 3.0 Engine og Dolbi Vision tryggir glæsileg myndgæði. Auðvelt er að nálgast alls konar afþreyingu með Google TV og einfalt er að stýra tækinu með Google Assistant talþjón eða fjarstýringu. Leikjaunnendur munu kunna að meta Auto Low Latency Mode, VRR og AMD FreeSync fyrir frábæra leikjaspilun.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160pix) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri
AiPQ 3.0 Engine
AiPQ 3.0 Engine örgjörvinn bætir bæði hljóð og mynd. Allt myndefni og hljóð er unnið og skalað upp í rauntíma eftir aðstæðum og umhverfi.
HDR með Dolby Vision
HDR tækni með Dolby Vision skilar meira en milljarð af ríkum litum. HDR eykur skerpu myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.
Quantum Dot tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótboltaleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki.
Google TV stýrikerfið
Stýrikerfi sjónvarpsins er Google TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns snjallforritum (e. apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum Google aðgangi. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.
Tilbúið í leikina
Fáðu meira út úr stóra skjánum með frábærum hljóð- og myndgæðum. Með HDMI 2.1 gerir tækið þér kleift að ná yfirburðum yfir mótspilurunum. Sjálfvirk Low Latency stilling, VRR (Variable Refresh Rate) og AMD FreeSync Premium er einnig til staðar.
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.