Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
AEG þvottavél L7FEG964E2 - Hvít
AEG L7FEG964E2 þvottavél þvær 9 kg og sér til þess að öll 9 kg af þvotti fái bestu mögulegu meðhöndlun.
9 kg þvottageta
Tilvalið fyrir fjölskyldur með börn og/eða marga á heimilinu sem vilja þvo sem mest á stuttum tíma.
Kerfi
20 mín hraðkerfi, kerfi fyrir ull og silki, Anti-Allergy kerfi og mörg önnur hefðbundnari kerfi eins og fyrir bómul og gerviefni.
ProSense tækni
Tryggir það að fötin þín fái bestu mögulegu meðhöndlun. Vélin stillir sjálfkrafa þvottatímann, vatnssmagn og orkunotkun fyrir hvern þvott.
ProSteam
Vélin notar ProSteam tækni til að gera fötin ennþá hreinni og minnkar krumpur.
PlusSteam
Með PlusSteam er hægt að bæta við gufu í enda kerfis og fá þannig minni krumpur og auðveldar það að strauja.
Öryggi
Lás er á þvottavélinni til að koma í vegfyrir að litlar hendur geti opnað vélina að slysni.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.