Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Alienware Aurora R13 i5 leikjaturn
Hönnun
Taktu leikinn á næsta stig með Aurora R13, sem er með nýju Legend 2.0 hönnuninni sem veitir um 50% aukið rúmmál (miðað við Legend 1.0). Rúmgóða hönnunin veitir greiðara aðgengi ásamt góðu snúruskipulagi og hljóðlátari vinnslu. Býkupulaga loftgötin auka loftflæði og veita betri leikjaupplifun.
Loftflæði
Nýja Legend 2.0 hönnunin leggur áherslu á loftflæði með endurskipulögðu innvolsi sem veitir aukið loftflæði með færri fyrirstöðum. Með færri fyrirstöðum geta vifturnar veitt aukið loftflæði með minni áreynslu - sem leiðir til aukinnar frammistöðu og hljóðlátari vinnslu.
Hiti
Aurora R13 er tilbúin í langar leikjalotur með háþróaðu loftflæði og Alienware vökvakælingu.
Skjákort
Nvidia GeForce RTX 3060 skjákortið er byggt í kringum næstu kynslóðar Ampere arkítektur. Skjákortið mætir kröfum nýrra leikja, upplifðu raunverulegri myndgæði og marga ramma á sekúndu í skarpri 4K 2160p upplausn.
Vinnsluminni
Nýjasta kynslóð vinnsluminna er nú fáanleg á R13 sem veita 50% aukna bandvídd miðað við Aurora R12. Með því er auðveldara að spila, streyma og stunda fjölverkavinnslu.
PCIe 5.0
R13 er með nýju kynslóð PCI-Express raufa sem veitir tvöfaldan gagnaflutning miðað við fyrrikynslóðir. Með PCIe 5.0 er tölvan tilbúin fyrir framtíðarkynslóðir skjákorta.
Geymslurými
512 GB M.2 PCIe NVMe SSD drif ræsir stýrikerfi, forrit og leiki á svipstundu þannig að biðin er nánast engin við ræsingu á tölvunni og á leikjum.
Alienware Command Center
Alienware Command Center er sífellt uppfært. Nýjasta útgáfan er með fínstilltum leikjasniðmótum, viðbragðsfljótu viðmóti og einföldum yfirklukkusnartillingum ásamt AlienFX stillingum. Hægt er að búa til sniðmót með kraft, hita, hljóðum, lýsingu, flýtitökkum og fleiru. Hlekkjaðu sniðmótið við leik og stillingarnar virkjast sjálfkrafa þegar leikurinn er ræstur. Með AlienFX geturðu stillt lýsingarsvæði með allt að 16,8 milljón litum.
Tengimöguleikar að framan
- 1x USB-C 3.2 Gen 2 (með Powershare tækni)
- 2x USB-A 3.2 Gen 1
- 1x USB-A 3.2 Gen 1 (með Powershare tækni)
- 1x 3,5 mm jack tengi
Tengimöguleikar að aftan
- 1x USB-C 3.2 Gen 2 (10Gbps)
- 1x USB-C 3.2 Gen 2x2 (20Gbps)
- 2x USB-A 3.2 Gen 1 (5Gbps)
- 4x USB-A 2.0
- WiFi 5, Bluetooth 5.0, Gigabit LAN tengi
- 6x 3,5 mm jack tengi
- SPDIF Digital Output (Coax)
- SPDIF Digital Output (TOSLINK)