Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apollo Explore rafmagnshlaupahjól

A1002
Apollo Explorer rafmagnshlaupahjólið er fyrir könnuði sem vilja meiri kraft upp hóla og hæðir. 52V rafhlaða með 1000W mótor í aðeins 23 kg þungri hönnun.
120 kg burðargeta
Allt að 25 km/klst hraði
Allt að 55 km drægni
Aðeins 23 kg að þyngd
10" dekk
1000 - 1400 W mótor
129.995 kr.

Láttu mig vita

Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Upplýsingar

Apollo Explorer rafmagnshlaupahjólið er fyrir könnuði sem vilja meiri kraft upp hóla og hæðir. 52V rafhlaða með 1000W mótor í aðeins 23 kg þungri hönnun.

Gæði í fyrirrúmi
Öll rafmagnshlauphjól frá Apollo eru áreynsluprófuð af nákvæmni í Kanada áður en þau eru sett í sölu á almennan markað.

Klífur hóla og hæðir
Apollo Explorer er öflugt rafmagnshlaupahjól sem er tilvalið fyrir vegi og fjallavegi. Hlaupahjólið er með kolalausan 1000W mótor með allt að 1400W hámarks kraft. Með þessum mótor kemst hlaupahjólið hraðar og getur keyrt upp allt að 20° halla. 120 kg burðageta og kemst upp í 25 km/klst á aðeins 3,5 sekúndum.

Bremsaðu og gefðu í snöggt
Með miklum krafti koma líka góðar bremsur. Apollo Explore er með tvær hágæða diskabremsur. Re-Gen Brake bremsukerfið hægir á hjólinu sjálfkrafa þegar handbremsan er notuð (hægt að stilla kraft bremsunnar í stillingum). Einnig er bremsan gædd þeim eiginleika að hlaða rafhlöðuna þegar bremsað er. Allt í allt er hjólið með allt að 2,45 metra bremsudrægni.

Lítið fyrir mikið
Með 52V 18.200 mAh Dynavolt rafhlöðu kemst Apollo Explorer allt að 55 km á einni hleðslu. Dynavolt er þekktur framleiðandi fyrir öflugar rafhlöður fyrir rafmagnsmótorhjól. 

Tvöföld fjöðrun
Fram- og aftari hjólið á Explore er útbúið hágæða tvöfaldri fjöðrun að aftan og framan svo erfiðir vegir verða mýkri í keyrslu. 10" tommur loftfyllt dekk að framan og aftan.

Stjórnborð
Hægt er að sjá upplýsingar um hraða, drægni, hleðslu rafhlöðu og margt fleira. Light er einnig með allskonar stillingar, eins og t.d. Kick-and-Go, Boost eða Cruise Control fyrir lengri ferðir. Breyttu kraftinum eða skiptu á milli mílna eða metrakerfisins alveg eins og þú vilt hafa það.

Helstu eiginleikar
- Hámarks afl mótors: 1400W
- Hámarks halli: 20°
- Hámarks bremsudrægni: 2,45 metrar
- 52V rafhlaða
- IP54 vörn - Hvað er IP vottun?

Stærð og þyngd
- 23 kg að þyngd
- Hámarks burðargeta: 120 kg
- Stærð brotið saman: 43 x 117 cm

Nokkur atriði sem þarf að passa upp á fyrir fyrstu notkun
- Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting í dekkjum og passa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um þrýsting, en oftast er miðað við 50 psi þrýsting. Ef ekki er nægt loft í dekkjum eykur það verulega líkur á að dekk springi. 
- Farðu vel með rafhlöðuna á hjólinu. Það þarf að hlaða hjólið upp í 100% hleðslu áður en þú notar hjólið í fyrsta skipti. Ákjósanleg notkun á rafhlöðu er að hlaða hana áður en hún tæmist alveg. Einnig skal passa uppá að hlaða hjólið reglulega yfir vetrartímann eða þegar hjólið er ekki í reglulegri notkun til að lengja líftíma rafhlöðunnar.

Rafhlaða
Til að hámarka líftíma rafhlöðu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
- Ekki er mælt með að nota hjólið í mjög miklu frosti og ekki geyma hjólið yfir vetrartímann í óupphituðu húsnæði.
- Hlaða skal hjólið reglulega yfir vetrartímann þegar hjólið er í geymslu.
- Aldrei skal hlaða hjól á afviknum stað – mælt er með hleðslu þar sem umgangur er og hægt að hafa auga með hjólinu. Rafhlaða í hlaupahjólum er stór og öflug og getur stafað af henni eldhætta eins og með aðrar rafhlöður.

Höggskemmdir
Mikilvægt er að fara varlega við notkun á rafmagnshlaupahjólum, en hér eru nokkur dæmi sem geta orsakað höggskemmdir á þeim:
- Þegar keyrt er óvarlega upp á götukanta
- Þegar verið er að stökkva fram af götuköntum og/eða úr hæð (ef höggið er of mikið þá skemmast demparar og stýrið getur skemmst eða brotnað – rafmagnshlaupahjól eru ekki hönnuð til að stökkva á þeim eða gera kúnstir).

Vatnsskemmdir
Ef það er verið að nota hjólin í mikilli bleytu þarf að gæta þess að þau fái að þorna inni í hlýju rými, þ.e. standi ekki úti og/eða í kaldri geymslu. Mikilvægt er að þurrka hjól áður en það er sett í hleðslu.
- Varast skal að keyra í polla og beita þarf almennri skynsemi þar sem hjólið er ekki vatnshelt.
- Eftir geymslutíma er mikilvægt að athuga loftþrýsting í dekkjum.

Hægt er að nálgast leiðbeiningar hér.

Eiginleikar
Farartæki
Strikamerki
0739904873372
Framleiðandi
Apollo
Litur
Svartur
Hleðslugeta (mAh)
18200
Hámarkshraði (km/klst)
25
Hjólastærð (″)
10
Drægni (km)
55
Burðargeta (kg)
120
Stærð (HxBxD)
122 x 119 cm
Þyngd (kg)
23
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður