Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Asus VivoBook 16X i5/16/512/120Hz 16" fartölva
Asus VivoBook 16X er með stórann 16" IPS skjá sem að sýnir öll helstu smáatriði með fallegum litum. 12. kynslóðar Intel örgjörvi tryggri eldsnögga vinnslu fyrir fjölþætt verkefni.
Örgjörvi
8 kjarna Intel Core i5 örgjörvinn tryggir hágæða frammistöðu. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 4,4 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 16 GB hröðu DDR4 vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Skjákort
Með Nvidia GeForce RTX 2050 skjákortinu getur þú notið þess að spila leiki hvar sem er. Skjákortið er með 4 GB af sérhæfðu vinnsluminni og notar Turing arkítektúr sem var hönnuð með leiki framtíðarinnar í huga. Kortið er talsvert öflugra en fyrri kynslóðir og veitir bætta frammistöðu, fleiri ramma og betri myndgæði á skilvirkari máti. Með ray-tracing eiginleikum getur þú notið raunverulegri ljósgeisla en áður.
Skjár
16" IPS LED skjárinn birtir myndir í kristaltærri og skarpri 1920x1200p upplausn. Þunnu rammarnir trufla lítið fyrir og hjálpa þér að gleyma umheiminum í leiknum. IPS tækni tryggir hærri birtuskil, sterkari liti og breiðari sjónarhorn. Skjárinn getur unnið við allt að 120 Hz endurnýjunartíðni.
Geymslupláss
512 GB M.2 PCIe NVMe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa leiki og bætir hraðann á gagnaflutningi.
HDMI
Með HDMI tengi er hægt að tengja tölvuna við sjónvarp eða skjávarpa og birta myndir í allt að 4K upplausn.
Tengimöguleikar
- 1x HDMI 2.1 TMDS
- 1x USB-C 3.2 Gen 2
- 2x USB-A 3.2 Gen 1
- Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- 720p vefmyndavél
- Baklýst lyklaborð
- Fjölsnertiflötur
- Innbyggður hátalari og hljóðnemi