Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Call of Duty: Modern Warfare III (PS5)

PS5CODMW3
Modern Warfare III fagnar 20 ára afmæli Call of Duty með fjölda svæða. Öll 16 svæði úr upprunalega Modern Warfare 2 eru uppfærð með nýjum eiginleikum.
Infinity Ward
Fyrir PlayStation 5
Skotleikur
Fyrir 18+ ára
12.995 kr.
Upplýsingar

Sagan heldur áfram úr geisivinsæla skotleiknum Call of Duty: Modern Warfare II, Captain Price og Task Force 141 þurfa að takast á við hættulega ógn. Þjóðernissinnaði stríðsglæpamaðurinn Vladimir Makarov stækkar tök sín um allan heim sem neyðir Task Force 141 til að berjast sem aldrei fyrr.

Í bardaga þarft þú að taka ákvarðanir - mismunandi búnaðir og leiðir um vígvöllinn. Auk klassísku leiðangra Call of Duty eru opin verkefni sem veita leikmönnum fleiri valkosti. Það er undir þér komið að ákveða hvort þú nýtir skjól eða ræðst beint á andstæðingana.

Svæði
Modern Warfare III fagnar 20 ára afmæli Call of Duty með einu stærsta safni svæða allra tíma - bæði gömul og ný. Öll 16 svæðin úr upprunalega Modern Warfare 2 (2009) eru uppfærð með nýjum eiginleikum og leikhömum við útgáfu leiksins ásamt 12 nýjum 6v6 svæðum sem koma seinna.

Modern Warfare III kemur einnig með Ground War svæðum sem innihalda nýstárleg svæði ásamt epískri endurkomu og þróun hins War Mode sem kom fyrst í Call of Duty: WWII árið 2017.

Uppvakningar
Nú getur þú unnið með öðrum leikmönnum til að lifa af og verjast ótal uppvakningum í stærsta Call of Duty Zombies svæði hingað til. Modern Warfare Zombies (MWZ) inniheldur nýja Treyarch Zombies sögu með verkefnum og nýjum eiginleikum sem þú getur uppgötvað.

*Netspilun krefst PlayStation Plus áskriftar.

Eiginleikar
Tölvuleikir
Strikamerki
5030917299681
Fyrir hvaða tölvu
PlayStation 5
Tegund leiks
Skotleikir
Aldurstakmark (PEGI)
18
Leikjahönnuður
Infinity Ward
Útgefandi
Activision
Útgáfuár
2023
Netspilun
Já, krefst PlayStation Plus áskriftar
Samanburður