Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Focal Bathys þráðlaus heyrnartól

FOCALBATHYSB
Focal Bathys þráðlausu heyrnartólin eru hönnuð fyrir kröfuharða einstaklinga sem vilja frábær hljómgæði án snúru. Bathys skila CD gæðum yfir Bluetooth, 24-bit 192 í USB-DAC ham og einnig er hægt að tengja þau með jack snúru.
40 mm hátalari
Virk hljóðeinangrun (ANC)
Bluetooth, USB, 3,5 mm jack
Allt að 30 klst rafhlöðuending
USB-DAC mode
Google Assistant
124.895 kr.

Láttu mig vita

Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Upplýsingar

Hönnun
Eins og öll Focal heyrnartól eru Bathys heyrnartólin gerð í Frakklandi með áherslu á smáatriði. Ramminn er gerður úr áli og magnesíum með leðri yfir eyrum og höfuðbandi. Focal eldtáknið er með skemmtilegri hvítri baklýsingu sem hægt er að kveikja og slökkva á með Focal-Naim smáforritinu. Á vinstri hlið er snertistjórnun fyrir ANC og á hægri hlið eru hljóðhnappar, fjölnota hnappur, USB DAC hnappur, talþjónahnappur, USB tengi og 3,5 mm jack tengi.

Þráðlaus gæði
Bathys eru með Bluetooth 5.1 tækni, allt að 30 klukkustunda rafhlöðuendingu í þráðlausum ham með ANC hljóðeinangrun. Þau eru samhæf SBC, AAC, Apt-X og Apt-X víxlþjöppun og henta því fjölda tækja. Fyrir þá sem vilja bestu hljómgæðin styður USB-DAC hamur allt að 24 bit / 192 kHz upplausn fyrir frábæran hljóm þökk sé DAC og innbyggða magnara heyrnartólanna.

Tvær gerðir ANC hljóðeinangrunnar eru í boði: Silent mode, sem hentar ferðalögum og Soft mode sem bæta einbeitingu heima eða á skrifstofunni, auk þess er Transparency mode sem hleypir umhverfishljóðum í gegn.

Rafhlöðuending
Bathys endast allt að 30 klukkustundir í Bluetooth ANC ham, 35 klukkustundir í jack ham og 42 klukkustundir í USB-DAC ham. Hraðhleðslan veitir þér 5 klukkustundir eftir einungis 15 mínútna hleðslu. Heyrnartólin eru hlaðin að fullu á einungis 90 mínútum.

Aðrir eiginleikar
Í Focal & Naim smáforritinu er hægt að breyta hljóm og heyrnartólin styðja Google Assistant og Amazon Alexa talþjóna. Þau eru líka samhæf Google Fast Pair fyrir hraðari og notendavænari tengingu.

Með Bathys fylgja Jack snúra og USB-C snúra ásamt ferðahulstri.

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
3544056727162
Hentar fyrir
Skrifstofu
Litur
Svartur
Rafhlöðuending (klst)
30
Tíðni (Hz)
15 - 22.000
Stærð hátalara (Driver)
40 mm
ANC hljóðeinangrun
Þráðlaus
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.1
Tengi
3,5 mm jack, USB-C
Lengd snúru (m)
1,2 m
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður