Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
HP Victus R5/8/256/6500/144Hz 15,6" leikjafartölva
HP Victus 15,6" leikjafartölvan hleypir þér í heim leikjanna. Hún er knúin af AMD Ryzen 5 örgjörva á meðan AMD Radeon RX skjákortið myndar frábæra grafík með ray-tracing tækni og skjárinn sýnir mjúkar hreyfingar með 144 Hz endurnýjunartíðni.
Örgjörvi
AMD Ryzen 5 5600H línan er byggð á Zen 3 arkítektur. Örgjörvinn er afkastameiri en fyrri kynslóðir ásamt því að nota minni orku. Átta kjarna Ryzen 6 örgjörvinn gerir tölvunni kleift að vinna mörg kröfuhörð forrit á sama tíma án hika eða tafa. Hann getur einnig nýtt tvo þræði á hvern kjarna, sem er hentugt til dæmis fyrir streymi. Ef þörf er á getur hann skipt í 4,2 GHz. Örgjörvinn er studdur af innbyggðri AMD Radeon Graphics skjástýringu og 8 GB DDR4 vinnsluminni.
Skjákort
AMD Radeon RX 6500M skjákortið er með 4GB DDR4 vinnsluminni. Hægt er að keyra kröfuharða leiki með góða 144Hz endurnýjunartíðni við Full HD 1080p upplausn. AMD FreeSync tækni samstillir tölvuskjá við skjákort ef tölvuskjárinn styður tæknina fyrir enn betri myndvinnslu.
Skjár
15,6" IPS LED skjárinn birtir nákvæma mynd í Full HD upplausn ásamt mjúkum hreyfingum með 144 Hz endurnýjunartíðninni. IPS tæknin tryggir betri sjónvídd, skýrari liti og dýpri skugga.
Geymslupláss
256 GB PCIe NVMe SSD geymsluplássið tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
Tengimöguleikar
- 1x USB-C 3.2 Gen1 (PD, DisplayPort 1.4, HP Sleep and Charge)
- 2x USB-A 3.2 Gen1 (eitt með HP Sleep and Charge)
- 1x HDMI 2.1
- Wi-Fi 6, Gigabit Ethernet LAN tengi, Bluetooth 5.3
- SD/mSD minniskortarauf
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- 720p vefmyndavél
- Fjölsnertiflötur
- Windows 11 Home 64-bit
- 3-cell 52,5 Wh rafhlaða
- Baklýst lyklaborð með talnaborði
- Kensington lás