Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
HyperX Pulsefire Haste þráðlaus leikjamús - Hvít
HyperX Pulsefire Haste þráðlausa leikjamúsin er hönnuð fyrir þá sem taka leiknum alvarlega. Hún er með TTC Golden micro rofa með rykfælni húðun, RGB lýsingu, stillanlegu DPI, 2,4 GHz þráðlausa tengingu og ofurléttri býkúpulaga hönnun. Músin er einnig með PTFE fætur og fyrir þá sem vilja er HyperFlex snúra sem tryggir mjúkar hreyfingar.
Hönnun
Hraði er mikilvægur, og með þessari 62 g mús nærðu ótrúlegum hraða. Býkúpulaga hönnunin léttir músina og minnkar líkur á svita í löngum og erfiðum leik. Til að tryggja að músin svífi er hún með PTFE fætur og HyperFlex snúru.
TTC Golden micro rofi
Músin er með TTC Golden micro rofa sem veita þér gott viðbragð til að forðast tvísmelli. Rofarnir eru með rykfælna húðun til að tryggja lengri endingu.
RGB lýsing
Leikurinn snýst ekki bara um sigur og tap, stíllin er líka mikilvægur. Þegar grunnurinn að sigur uppskriftinni er kominn geturðu uppfært aðstöðuna með RGB lýsingu. Með HyperX NGENUITY hugbúnaðinum getuðru sérstillt RGB lýsinguna, DPI og aðra eiginleika.
Rafhlaða
Pulsefire Haste músin er með allt að 100 klst rafhlöðuendingu sem samsvarar yfir 4 daga notkun.