Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

King of Tokyo borðspil

497050
Einfalt og andstyggilega skemmtilegt teningaspil! Leikmenn bregða sér í hlutverk stökkbreyttra skrímsla, risavaxinna vélmenna og geimvera sem ganga í gleði sinni berserksgang um Tókýó með það að markmiði að vera hinn eini sanni konungur borgarinnar.
Borðspil
Fyrir 2-6 leikmenn
30 mín leiktími
Fyrir 8+ ára
5.994 kr.
Upplýsingar

King of Tokyo er einfalt spil sem auðvelt er að læra en umfram allt mjög skemmtilegt, þar sem heppni og örlítil herkænska er lykillinn að kvikindislegum sigri. Leikmenn kasta sex teningum, þrisvar sinnum í röð, allir með táknum fyrir eyðileggingu, orku, lækningu eða árás. Þegar leikmaður á umferð, safnar hann teningunum saman til að vinna inn orku, lækna skrímsli eða bara til að til ráðast á annan leikmann. Að auki er hægt að kaupa sérstök spil með orku til að öðlast einstaka krafta eins og auka höfuð sem leyfir leikmanni að kasta auka teningi, brynvörn, dauðageisla og fleiri. Ofsafengnasti leikmaðurinn verður konungur Tókýó... en mun þá standa einn andspænis hinum skrímslunum! Sá sem fær fyrstur 20 stig eða stendur einn uppi á vígvellinum sigrar.

Fyrir 8 ára og eldri, 2-6 leikmenn. Hvert spil tekur um 30 mínútur.

King of Tokyo hefur unnið til fjölmargra verðlauna m.a. Besta Fjölskylduspilið árið 2011 hjá Dice Tower og Golden Geek verðlaunin í flokkunum Fjölskylduspil ársins, Barnaspil ársins og Partýspil ársins 2012 hjá Board Game Geek.

Innihald

- Leikborð
- 66 spil á íslensku
- 28 skífur
- 8 teningar
- 6 skrímslaspjöld
- 6 skrímsli + plaststandar
- Orkukubbar
- Íslenskar leikreglur

 

Eiginleikar
Leikföng
Strikamerki
5694310780483
Leikföng
Borðspil
Aldur
8+
Borðspil
[ "Fjölskylduspil", "Partýspil"]
Fjöldi leikmanna
Fyrir 2-6 leikmenn
Spilatími
30 mín
Samanburður