Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

LEGO Marvel Avengers

PS4LEGOAVENGE
3.995 kr.
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

LEGO Marvel Avengers á PlayStation 4. Útgáfudagur 26. janúar 2016.

Spilun:

Upplifið spennuna úr Avengers-stórmyndunum
Hér er hægt að spila sig í gegnum stórkostlegustu augnablikin úr kvikmyndaheimi Marvel, þar á meðal bardagann um New York á milli Hefnendanna og ofuróþokkans Loka sem sjá mátti í myndinni The Avengers. Einnig er boðið upp
á magnþrungna spennu úr myndinni Avengers: Age of Ultron með Hefnendunum, Kvikasilfri, Skarlatsnorninni, Sýninni og Últron. Svo er hægt að ferðast um aðra kunnuglega staði úr kvikmyndaheimi Marvel, en sama hvað maður kýs að gera er sígildi LEGO-húmorinn aldrei langt undan.

Fjölbreytt úrval persóna
Hægt er að velja og opna rúmlega 100 nýjar persónur sem hafa ekki sést áður í LEGO-leikjum, þar á meðal ofurhetjur og illmenni úr kvikmyndaheimi Marvel, auk ýmissa persóna sem koma við sögu Hefnendanna í teiknimyndasögunum. Fjöldi ógleymanlegra staðsetninga úr kvikmyndaheimi Marvel Hægt er að ferðast um ógleymanlega staði úr kvikmyndunum The Avengers og  Avengers: Age of Ultron, auk þess sem hægt er að nota efni og staðsetningar úr fjölda annarra stórmynda frá Marvel.

Nýir eiginleikar persóna
Nú er hægt að framkvæma ótrúlegar hreyfingar, leysa gátur og opna leynisvæði með bættum eiginleikum persóna, eins og Hefnendasamvinnu til að vinna sig í gegnum söguþráðinn og berjast með hæfileikum Hefnendanna.

Opinn heimur og frjáls spilun:
Hér má finna opinn heim og frjálsa spilun og hægt er að kanna hvern krók og kima á gríðarstóru götukorti LEGO Marvel Manhattan eða sjö öðrum staðsetningum úr kvikmyndaheimi Marvel þar sem spilarar geta gengið um frjálsir, safnað gulli og opnað fyrir spilun á nýjum persónum.

 

Einnig fáanlegur á PlayStation 3, PS Vita, Xbox One, Xbox 360, Nintendo 3DS og PC.

Eiginleikar
Tölvuleikir
Strikamerki
5051895395264
Fyrir hvaða tölvu
PlayStation 4
Aldurstakmark (PEGI)
3
Útgefandi
Warner Bros
Útgáfuár
2016
Netspilun
TBA
Samanburður