Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo IdeaCentre AIO 5 i5/16/1TB 27" skjátölva
Lenovo IdeaCentre AIO 5 27" skjátölvan er afkastamikil vél í handhægum pakka. Stílhreini ramminn er með þunnar hliðar á þremur hliðum, vefmyndavél og tvo 5W JBL hátalara fyrir góða margmiðlunarupplifun.
Örgjörvi
12 kjarna Intel Core i5 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er byggður á endurhönnuðum 10nm ferlum sem tryggja hraðari vinnslu og minni orkunotkun. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 4,7 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 16 GB hröðu DDR5 vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.
Skjár
Horfðu á kvikmyndir, spilaðu leiki eða breyttu skjölum á 27" QuadHD IPS skjánum sem birtir skarpa mynd með háum birtuskilum og nákvæmum litum. Enn fremur veitir IPS tæknin breið sjónarhorn.
Geymslupláss
1 TB M.2 NVMe PCIe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
HDMI
Tengdu aukaskjá til að bæta vinnuna og fá meira pláss fyrir skjöl og myndir með HDMI 2.1 tenginu sem gerir þér kleift að tengja skjá eða skjávarpa með allt að 8K upplausn við 60Hz.
Tengimöguleikar
- 1x HDMI 2.1 út
- 1x HDMI inn
- 1x USB-C 3.2 Gen 2
- 1x USB-C 2.0
- 1x USB-A 3.2 Gen 2
- 1x USB-A 3.2 Gen 1
- 1x USB-A 2.0
- Wi-Fi 6 (802.11ax), Bluetooth 5.1, Gigabit Ethernet tengi
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home-64bit
- 5 MP IR vefmyndavél
- 2x 5W víðóma hátalarar
- Hljóðnemar
- Lyklaborð og mús fylgja með