Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo IdeaPad Flex 5 i3/8/128 14" fartölva
Lenovo IdeaPad Flex 5 2-í-1 fartölvan er hentug tól fyrir dagleg verkefni með öflugum eiginleikum eins og Intel Core i3 örgjörva og 14" IPS snertiskjá. Rafhlaðan endist allt að níu klukkustundir í senn sem gerir þér kleift að skilja hleðslutækið eftir heima.
Windows 11 S Mode
Léttari og notendavænni útgáfa af Windows 11 stýrikerfinu sem hentar fullkomlega fyrir tölvu af þessari gerð. Hægt er að sækja forrit í gegnum Windows Store sem er öruggari leið að fara því forritin eru sannprófuð af Microsoft og því töluvert minni hætta á vírusum eða öðrum kvillum. Með Windows 11 S Mode nýtist innviður tölvunnar betur og rafhlöðuending eykst. Það er ókeypis að skipta úr Windows 11 S Mode í Windows 11 Home, en þá þarf notandi að sjá um að skipta yfir sjálfur.
2-í-1
Það besta úr fartölvum og spjaldtölvum. Þú getur snúið skjánum að vild hvort sem það væri til að skrifa póstinn eða jafnvel horfa á myndefni eins og notað væri spjaldtölvu.
Örgjörvi
Með sex kjarna Intel Core i3 örgjörvanum úr Alder Lake seríunni, byggðum á skilvirkri 10nm SuperFin arkítektúr, er auðvelt að vinna í mörgum verkefnum samtímis. Ef þörf er á getur örgjörvinn skipt í 4,4 GHz Turbo Mode. Hann er studdur af hröðu 8 GB LPDDR4X vinnsluminni.
Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.
Skjár
14" IPS snertiskjárinn birtir nákvæm myndgæði í WUXGA 1920 x 1200 upplausn. IPS skjátækni tryggir nákvæmari liti, skýrari mynd, betri birtuskil og meiri sjónvídd.
Fingrafaralesari
Með innbyggða fingrafaralesaranum haldast gögnin örugg og aðgengileg þér.
HDMI
Hægt er að nýta HDMI tengi á tölvunni til að tengjast stærri skjá eins og sjónvarpi eða tengjast myndvarpa í allt að 4K UHD upplausn.
Tengimöguleikar
- USB-C 3.2 Gen 2 sem styður Thunderbolt 4, DisplayPort 1.4a, gagnaflutning og PowerDelivery 3.0
- 2x USB-A 3.2 Gen 1
- Wi-Fi 6, Bluetooth 5.2
- Minniskortalesari - MMC, DSD, SDHC, SDXC
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- 720p vefmyndavél
- Fjölsnertiflötur
- Baklýst lyklaborð