Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo Legion Pro 5i i7/16/1TB/4070/240Hz 16" leikjafartölva
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Lenovo Legion Pro 5i fartölvan framkallar frábær myndgæði í leiknum sem jafnast á við hágæða leikjaturna. Hún er knúin af Intel Core i7 örgjörva og Nvidia skjákorti. WQHD IPS skjárinn nær allt að 240 Hz endurnýjunartíðni og styður HDR. Lenovo Legion AI Engine+ hjálpar þér að halda mörgum römmum á sekúndu og rúsínan í pylsuendanum er endingargóða hönnun fartölvunnar úr hágæða áli sem tryggir lægri þyngd, betri endingu og fallegt útlit.
Örgjörvi
16 kjarna Intel Core i7 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er byggður á endurhannaðri 10nm Intel 7 ferlum sem tryggir hraðari vinnslu og minni orkunotkun. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 5 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 16 GB hröðu LPDDR5 vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Skjákort
Nvidia GeForce RTX 4070, 8 GB skjákortið nýtir næstu kynslóðar ray-tracing tækni og tensor kjarna ásamt fjölda kjarna til að skila ótrúlegum afköstum og frábærum myndgæðum. Hraða DDR6 minnið tryggir að allt gangi hispurslaust.
240 Hz skjár
16" IPS skjárinn birtir myndir í skarpri WQHD upplausn við allt að 240 Hz. IPS tæknin tryggir skarpari og bjartari liti og breiðara sjónarhorn. Með allt að 500 nit birtustigi er skjárinn einnig HDR400 vottaður.
Nvidia G-Sync
Þessi tækni samstillir endurnýjunartíðni skjásins við skjákortið. Þetta lágmarkar hökt og tafir, svo þú getur notið flæðandi og skarpra hreyfinga á skjánum.
Geymslupláss
1 TB M.2 PCIe NVMe SSD geymsluplássið tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
Tengimöguleikar
- HDMI tengi
- 2x USB-C 3.2 Gen2 tengi
- 4x USB-A 3.2 Gen1 tengi
- Wi-Fi 6E, Gigabit LAN tengi og Bluetooth 5.1
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- 1080p FHD vefmyndavél
- 4 svæða RGB lyklaborð
- Fjölsnertiflötur
- 80 Wh Li-pol rafhlaða