Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo Yoga 7 i5/8/512 14" fartölva
Lenovo Yoga 7 14" fartölvan er frábær ferðafélagi sem hjálpar þér að leysa öll verkefni og halda einbeitingu með öflugum 13. kynslóðar Intel örgjörva. Hún er líka með 8 GB vinnsluminni, hraðann M.2 PCIe SSD og 14" OLED skjá með ótrúlega nákvæma liti. Með pennanum sem fylgir með getur þú líka skrifað glósur eða skyssað.
Örgjörvi
12 kjarna Intel Core i5 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er byggður á endurhannaðri 10nm Intel 7 ferlum sem tryggir hraðari vinnslu og minni orkunotkun. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 4,6 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 8 GB hröðu LPDDR5 vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.
OLED snertiskjár
14" skjárinn birtir myndir í skarpri WUXGA 1920 x 1200 upplausn. Skjáinn er hægt að snúa 360° og nýtist eins og spjaldtölva sem gerir þér kleift að skyssa, teikna eða glósa með innföldum Lenovo Digital Pen. OLED tæknin er sparneytin og framkallar dýpri svarta en hefðbundnir LED skjáir ásamt breiðum sjónarhornum. Hann er einnig með HDR True Black 500.
Geymslupláss
512 GB M.2 NVMe PCIe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
HDMI
Hægt er að nýta HDMI tengi á tölvunni til að tengja stærri skjá eins og sjónvarp eða tengjast myndvarpa með 1080p FHD upplausn.
Tengimöguleikar
- 1x HDMI
- 2x Thunderbolt 4/USB-C 4 Gen 3x2
- 1x USB-A 3.2 Gen 1
- MicroSD minniskortarauf
- WiFi 6E (802.11ax), Bluetooth 5.1
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- 2W hátalarar með Dolby Atmos stuðning
- Innbyggð vefmyndavél með Full HD 1080p stuðning
- Fjölsnertiflötur
- Baklýst lyklaborð
- Lokari á vefmyndavél
- IR skanni fyrir Windows Hello
- Windows 11 Home 64-bit