Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo Yoga Pro 7 i7/16/512/90Hz 14,5" fartölva
Lenovo Yoga 7 14,5" fartölvan er frábær ferðafélagi sem hjálpar þér að leysa öll verkefni og halda einbeitingu með öflugum 13. kynslóðar Intel örgjörva. Hún er líka með 16GB vinnsluminni, hraðann M.2 PCIe SSD og 14,5" IPS skjá með nákvæmum litum ásamt 90 Hz endurnýjunartíðni fyrir mjúkar hreyfingar.
Örgjörvi
14 kjarna Intel Core i7 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er byggður á endurhönnuðum 10nm Intel 7 ferlum sem tryggir hraðari vinnslu og minni orkunotkun. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 5 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 16 GB hröðu LPDDR5 vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.
Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.
Skjár
14,5" IPS skjárinn er með skarpa WQXGA upplausn með 2560 x 1600p. Þunnu rammarnir trufla lítið fyrir og IPS tæknin tryggir há birtuskil, skýra lita og breið sjónarhorn.90 Hz endurnýjunartíðnin veitir viðbragðsfljótari upplifun með mjúkum hreyfingum.
Geymslupláss
512 GB M.2 NVMe PCIe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.
HDMI
Hægt er að nýta HDMI tengi á tölvunni til að tengja stærri skjá eins og sjónvarp eða tengjast myndvarpa með 1080p FHD upplausn.
Tengimöguleikar
- 1x HDMI
- 1x Thunderbolt 4/USB-C 4 Gen 3x2
- 1x USB-C 3.2 Gen 2
- 1x USB-A 3.2 Gen 1
- WiFi 6E (802.11ax), Bluetooth 5.1
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- 2W hátalarar með Dolby Atmos stuðning
- Innbyggð vefmyndavél með Full HD 1080p stuðning
- Fjölsnertiflötur
- Baklýst lyklaborð
- Lokari á vefmyndavél
- IR skanni fyrir Windows Hello
- Windows 11 Home 64-bit