Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Nokia 800 Tough takkasími - Svartur
Þessi farsími stendur undir nafni þar sem hann er harðgerður og vatns-, ryk-, högg- og hitavarinn auk 2100mAh rafhlöðu. Einnig er Nokia 800 Tough með KaiOS sem sameinar ákveðna snjallsímamöguleika eins og t.d. Google Maps.
Sterkbyggð hönnun
Nokia 800 Tough er hannaður fyrir fólk sem er mikið á ferðinni. IP68 og MIL-810G viðurkenning þýðir að þessi sími þolir ryk, sand og mikinn hitamun. Einnig þolir síminn að vera í allt að 30 mínútur í vatni í allt að 1,5m dýpt. Sterkir takkar eru á hliðum símans og hönnunin er gerð til þess að auðvelt sé að festa hann á t.d. útivistar búnað.
Google Assistant
Hægt er að nota raddstýringu með símanum og nýta hana til þess að hringja, senda skilaboð og fleira.
KaiOS, geymsla og tengimöguleikar
Nokia 800 Tough er ekki venjulegur takkasími. Með KaiOS stýrikerfinu færðu marga svipaða möguleika og hægt er að nálgast í snjallsíma, t.d. að niðurhala forrit á 4GB geymsluplássið sem hægt er að stækka með microSD. Einnig er síminn með WiFi og 4G LTE. Með símanum fylgir WhatsApp, Messenger, Facebook og Google Maps með innbyggðri GPS flögu.
Myndavél
Farsíminn er með innbyggða 2MP myndavél og LED flass sem virkar einnig eins og vasaljós með 198 lumen.
Aðrir eiginleikar
- 2100 mAh rafhlaða
- 3,5 mm hljóðtengi
- 2,04" skjár með QVCA upplausn (240x320p)
- Qualcomm 205 örgjörvi
- nanoSIM
- Hátalari