Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Nokia T10 4/64GB LTE Kids Edition spjaldtölva
Nokia T10 Tab 8" spjaldtölvan skemmtir þér hvar sem er með léttu hönnuninni. Hún er með 8" IPS snertiskjá með HD upplausn, ásamt átta kjarna Unisoc örgjörva og 4 GB vinnsluminni og 64 GB geymsluplássi. 8 MP myndavélin hjálpar þér að grípa mikilvægu augnablikin á meðan 8 MP frammyndavélin tekur frábærar sjálfur. Farðu á netið nánast hvar sem er með Nano-SIM korti.
Google Kids Space
Smáforrit sem eru hönnuð fyrir börn, gerð til að gleðja og fjörga hugann.
Högg- og vatnsvarið hulstur
Eitt er víst, börn missa hluti í jörðina. Sem betur fer er Nokia T10 Kids Edition með einstaklega góðu hulstri sérhannað fyrir allt sem fylgir börnunum. Hulstrið er högg- og vatnsvarið og með handfangi.
Handhæg
Með einungis 375 gramma þyngd og 9 mm þykkt er spjaldtölvan mjög meðfærileg og þú tekur varla eftir henni í töskunni.
Skjár
8" TFT snertiskjárinn birtir myndir í HD+ gæðum eða 1280 x 800 pixlar. Njóttu þess að horfa á kvikmyndir, lesa rafbækur eða vafraðu á netinu með frábærum litum, háum birtustigum og breiðu sjónarhorni. Auðvelt er að sjá allt á skjánum.
Geymsla og kraftur
T10 er með öflugum átta kjarna Unisoc T606 örgjörva sem gerir þér kleift að stunda fjölverkavinnslu, spila leiki eða eiga myndsímtöl. Með 4 GB vinnsluminni getur þú átt von á áreiðanlegri frammistöðu. Geymdu öll forritin, myndbönd og myndir á 64 GB geymsluplássinu sem hægt er að stækka með MicroSDXC minniskorti.
Myndavélar
Spjaldtölvan er með 8 MP aðalmyndavél sem tekur myndir og myndbönd í FullHD upplausn svo auðvelt er að geyma minningarnar. 2 MP sjálfumyndavélin sér um allar sjálfur og myndsímtöl.
Android 12
Android 12 stýrikerfið veitir bætta frammistöðu og öryggi. Ásamt öðrum eiginleikum styður það dökkt viðmót í öllu stýrikerfinu, snjallar tilkynningar og eiginleika sem stuðla að heilbrigðari notkun eins og focus mode. Stýrikerfið hjálpar þér einnig með persónuvernd með auknum öryggis og staðsetningarvalkostum.
Tengimöguleikar
- WiFi-ac, Bluetooth 5.0
- NanoSIM rauf
- Micro SDXC minniskortarauf
- USB-C tengi fyrir hleðslu og gagnaflutning
- 3,5 mm heyrnartólatengi