Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Nokia XR21 128GB 5G - Svartur
Horfðu á myndbönd og taktu fallegar myndir með Nokia XR21 snjallsímanum. Hann er með stóran 6,49" FHD+ LCD skjá með 120 Hz endurnýjunartíðni, öflugan átta kjarna örgjörva ásamt 6 GB vinnsluminni , 64 MP aðalmyndavél fyrir einstaklega skarpar og nákvæmar myndir og stóra 4800 mAh rafhlöðu. Síminn hefur Snapdragon 695 5G örgjörva sem hefur kraftinn í öll dagleg verkefni ásamt 5G tengimöguleika.
3 ár af öryggisuppfærslum og ábyrgð
XR21 er með Android stýrikerfinu og til að tryggja að hann haldist öruggur hefur Nokia lofað þremur árum af mánaðarlegum öryggisuppfærslum auk þriggja ára ábyrgðar. Einnig eru 3 stýrikerfisuppfærslur og 1 skjáskipti í eitt ár sem fylgja.
Skjár
Nokia XR21 er með stóran 6,49" LCD skjá sem veitir þér FHD+ upplausn eða 2400 x 1080 pixla. Með 120 Hz endurnýjunartíðni getur þú notið mjúkra hreyfinga og hraðari viðbrögð. Skjárinn er þakinn Gorilla Glass Victus sem verndar skjáinn gegn höggum og lætur hann endast lengur.
Myndavélar
Fangaðu öll mikilvægu augnablikin í lífi þínu með öflugum myndavélum aftan á símanum. 64 MP aðalmyndavélin með f/1.79 ljósopi veitir þér skarpar og nákvæmar myndir, jafnvel í dimmu umhverfi. Taktu HD 1080p myndbönd og notaðu stillingar eins og Cinema, HDR, Beautify og ásamt fleirum fyrir flass og góð gæðí. Myndavélin er þaking Corning Gorilla Glas fyrir betri vörn gegn falli. Síminn er einnig með 8 MP aðdráttarlinsu til að ná betri myndum af hlutum lengra í burtu. Taktu fallegar sjálfur með 16 MP sjálfumyndavélinni og deildu þeim með vinum.
Kraftur og geymsla
XR21 snjallsíminn er með öflugan átta kjarna Snapdragon 695 5G örgjörva sem veitir meira en nóg afl til að spila uppáhaldsleikina þína, horfa á og streyma háskerpumyndböndum. Síminn hefur einnig 5G tengingu fyrir hraðara net. Með 6 GB vinnsluminni og 128 GB innra minni geturðu geymt allar myndirnar þínar, gögn, myndbönd og önnur smáforrit í símanum.
Rafhlaða
Síminn hefur 4800 mAh rafhlöðu til að skemmta þér út allan daginn. Með USB-C tenginu geturðu hlaðið símann þinn og flutt gögn.
Aðrir eiginleikar
- DualSIM fyrir Nano-SIM og eSIM kort
- USB-C 2.0 hleðslutengi
- Wi-Fi 6 (802.11ax)
- Bluetooth 5.1
- Fingrafaralesari
- GPS, Beidou, Galileo og Glonass staðsetningarþjónusta
- IP69K ryk- og vatnsvörn
- Vottað MIL-STD-810H
- 3,5 mm Mini Jack tengi