Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
OnePlus 10 Pro 5G 256/12GB snjallsími - Forest grænn
OnePlus 10 Pro snjallsíminn er með frábæran Snapdragon 8 Gen 1 örgjörva og styður 5G farsímakerfi. Síminn er með 48 + 50 + 8 MP myndavél sem er hönnuð í samstarfi við Hasselblad og 6,7" Fluid AMOLED snertiskjá með 120 Hz endurnýjunartíðni. Síminn er eldsnöggur að hlaða sig með 80 W hraðhleðslu.
Snertiskjár
OnePlus 10 Pro er með 6,7" Fluid AMOLED snertiskjá með 3216 x 1440 pixla upplausn. Skjárinn er með góða litanákvæmni, djúpa svarta liti og 120 Hz endurnýjunartíðni. Háa endurnýjunartíðnin veitir stöðuga áhorfs upplifun, sem er sérstaklega áberandi þegar þú ert að skoða skjöl, samfélagsmiðla og við leikjaspilun. Snertiskjárinn er með stillingu fyrir lestur ásamt nætur stillingu sem síar bláa ljósið og er með öflugt Gorilla Glass.
Myndavélar
Með þessari kynslóð af símum ákvað OnePlus að fara í samstarf við fræga Hasselblad fyrirtækið til þess að skila byltingarkennda myndavélaruppsetningu. Aftan á símanum er 48 MP aðalmyndavél með f / 1.8 ljósopi, optical image stabilization hristivörn og autofocus, 50 MP ofur gleiðlinsu með f / 2.2 ljósopi og autofocus, 8 MP aðdráttarlinsu með optical image stabilization hristivörn, autofocus og 3x aðdrátt. Sjálfumyndavélin er með 16 MP upplausn, f / 2.4 ljósopi.
Vinnuhæfni og geymsla
Síminn er með öflugan átta kjarna Qualcomm Snapdragon 8 Gen 1 örgjörva með 5G stuðning og er studdur af 12 GB vinnsluminni sem gerir þér kleift að gera marga hluti í einu og spila kröfuharða leiki. Síminn er með 256 GB geymslupláss.
OxygenOS 12
OxygenOS stýrikerfið er hannað af OnePlus sem tryggir hraðari og flæðandi vinnslu. Kerfið býður upp á allskonar stillingar sem hægt er að sérstilla, notendavænt viðmót fyrir handhreyfingar, Zen Mode og fleira.
Rafhlaða og hleðsla
OnePlus 10 Pro er með 5000 mAh rafhlöðu sem styður 80W SUPERVOOC hraðhleðslu sem að getur veitt hleðslu fyrir daginn á aðeins nokkrum mínútum. Snjallsíminn styðir einnig 50W þráðlausa hleðslu. 80 W hleðslan hleður símann frá 1-100% á aðeins 32 mínútum, 50 W þráðlausa hleðslan er 47 mínútur að hlaða frá 1-100%.
Aðrir eiginleikar
- Tvö nanoSIM
- IP54 ryk- og vatnsvörn
- WiFi 6 (802.11ax)
- Bluetooth 5.2 með aptX, aptX HD, LDAC og AAC stuðning fyrir þráðlausa hlustun
- NFC fyrir snertilausar greiðslur
- Staðsetningartækni: GPS, A-GPS, GLONASS, Galileo, Beidou og QZSS
- Innbyggður fingrafaralesari í skjá
- Notendavæn tilkynningastika
Innifalið í pakkningu
- OnePlus 10 Pro
- 80W SUPERVOOC straumbreytir
- USB-C snúra
- Skjávörn á skjá
- Hulstur
- SIM korta pinni
- Leiðbeiningar