Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Philips 32" PHS6808 LED sjónvarp (2023)
Philips 32" PHS6808 LED snjallsjónvarpið er frábær viðbót við hvert herbergi, hvort sem það er í svefnherberginu eða skrifstofunni. Tækið er HD Ready með 1366 x 768 pixla upplausn og kemur með Pixel Plus HD.
Pixel Plus HD
Pixel Plus HD tæknin sér til þess að myndefnið fái að njóta sín með meiri nákvæmni og skarpari litum. Með Pixel Plus HD og 200 PPI (Picture Performance Index) tryggir tækið flott myndgæði og heldur í við hasarinn.
HD Ready sjónvarp
Sestu aftur og njóttu þess að horfa á há myndgæði og skarpa liti með 1366 x 768 pixla upplausn.
Nett hönnun
Tækið er hannað til þess að vera létt og fyrirferðalítið. Það passar einstaklega vel inn í flest herbergi og er einungis 6,4 kg svo auðvelt er að flytja það á milli eftir þörfum.
Philips Smart TV OS
Philips Smart TV OS veitir þér þægindi og afþreyingu á sama tíma. Þú færð persónulegar ráðleggingar fyrir kvikmyndir, myndbönd, seríur, leiki og margt fleira.
Google Assistant
Finnurðu ekki fjarstýringuna? Hafðu engar áhyggjur, þú getur auðveldlega stjórnað sjónvarpinu með röddinni þinni með innbyggða Google Assistant talþjóninum. Sjónvarpið er einnig samhæft Amazon Alexa.
Tengimöguleikar
- 3x HDMI 1.4
- 2x USB 2.0
- 3,5mm heyrnartólatengi
- Loftnetstengi
- CI+ 1.4 tengi
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.