Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Philips 43" PUS7608 LED sjónvarp (2023)

43PUS760812
Philips PUS7608 UHD snjallsjónvarpið býður upp á frábær hljóm- og myndgæði þökk sé Dolby Vision og Dolby Atmos, Pixel Precise örgjörvanum og líflegri HDR tækni. Njóttu fjölbreyttrar afþreyingar með Philips Smart TV OS.
60 Hz 4K UHD LED snjallsjónvarp
Pixel Precise Ultra HD örgjörvi
Philips Smart TV OS
3x 2.0 HDMI tengi
200 x 100 VESA
Dolby Vision, Dolby Atmos
89.995 kr.
Upplýsingar

Með frábærum mynd- og hljómgæðum og fallegri hönnun er Philips 43" PUS7608 UHD snjallsjónvarpið frábær viðbót við hvert heimili. 4K UHD myndgæði bjóða upp á nánast fullkomna áhorfsupplifun og HDR tæknin býður upp á litríka og raunverulega liti. Pixel Precise Ultra HD örgjörvinn sér til þess að myndefnið njóti sín sem best. Sjónvarpið kemur með nýja Philips Smart TV OS fyrir meiri afþreyingu.

Pixel Precise Ultra HD örgjörvi
Pixel Precise Ultra HD örgjörvinn sér til þess að yfir 8 milljón pixlar virki í fullkomnu samræmi og veitir þér skýr og nákvæm myndgæði. Niðurstaðan er sú að svartir litir verða enn dýpri og ljósir litir enn bjartari. Með náttúrulegri litum eykur tækið upplifun þína á öllu myndefni, frá íþróttum, yfir í bíómyndir og allt þar á milli.

Litríkir HDR litir
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.

4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.

Dobly hljóð og mynd
Dolby Vision og Dolby Atmos veita þér raunverulega heimabíó upplifun. Dolby Vision gefur þér skæra og raunverulega liti á meðan Dolby Atmos bætir hljómgæðin og lætur þér líða eins og þú sért í þínum eigin einkakvikmyndasal heima.

Philips Smart TV OS
Philips Smart TV OS veitir þér þægindi og afþreyingu á sama tíma. Þú færð persónulegar ráðleggingar fyrir kvikmyndir, myndbönd, seríur, leiki og margt fleira.

Google Assistant
Finnurðu ekki fjarstýringuna? Hafðu engar áhyggjur, þú getur auðveldlega stjórnað sjónvarpinu með röddinni þinni með innbyggða Google Assistant talþjóninum. Sjónvarpið er einnig samhæft Amazon Alexa.

Hannað fyrir leiki
Með Auto Low Latency Mode kveikir sjónvarpið sjálfkrafa á leikjaham til að stytta viðbragðstíma og bæta leikjaupplifun. Njóttu HDR leikja án stama og hika með Variable Refresh Rate tækni.

Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.

Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.

 

Eiginleikar
Sjónvörp
Strikamerki
8718863036860
Framleiðandi
Philips
Litur
Grár
Orkuflokkur (A til G)
F
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
51
Orkunotkun þegar tækið er í reiðuham (W)
0,3
Skjágerð
LED
Skjástærð (″)
43
Upplausn
4K UHD (2160p)
Upplausn í pixlum
3840 x 2160
Endurnýjunartíðni (Hz)
60 Hz
Skjástærð (cm)
108
Gerð LED lýsingar
Direct LED
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
Pixel Precise Ultra HD
Birtuskil
Dolby Vision
Stýrikerfi
Philips Smart TV OS
Innbyggður netvafri
Styrkur hátalara
20W
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 4 (802.11n)
LAN tengi
HDMI útgáfa
2.0
HDMI 2.0 tengi
3
HDMI tengi (samtals)
3
Digital Optical
Tengi fyrir heyrnartól
USB tengi
2
Gervihnattamóttakari
DVB
C,T2,S2
Fylgihlutir í kassa
Borðstandur, fjarstýring, rafmagnssnúra, 2x AAA rafhlöður, leiðbeiningar
Stærð (HxBxD)
58,7 x 95,8 x 22,3 cm
Stærð án stands (HxBxD)
55,9 x 95,8 x 8,5 cm
VESA veggfestingarstaðall
200 x 100
Þyngd (kg)
9.1
Þyngd án stands (kg)
6.8
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður