Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Philips 55" The One LED sjónvarp (2023)

55PUS884812
Philips The One PUS8848 UHD snjallsjónvarpið býður upp á frábær hljóm- og myndgæði þökk sé Dolby Vision og Dolby Atmos, P5 Perfect Picture örgjörvanum, HLG og líflegri HDR10+ tækni.
120 Hz 4K UHD LED snjallsjónvarp
P5 Perfect Picture örgjörvi
Google TV stýrikerfi
2x 2.1, 2x 2.0 HDMI tengi
200 x 300 VESA
Dolby Vision, Dolby Atmos
199.995 kr.
Upplýsingar

Með frábærum mynd- og hljómgæðum og fallegri hönnun er Philips 55" The One snjallsjónvarpið frábær viðbót við hvert heimili. 4K UHD myndgæði bjóða upp á nánast fullkomna áhorfsupplifun og HDR10+ tæknin býður upp á litríka og raunverulega liti. P5 Perfect Picture örgjörvinn sér til þess að myndefnið njóti sín sem best. Sjónvarpið hentar einnig einstaklega vel fyrir tölvuleiki þar sem það hefur AMD FreeSync Premium og Auto Low Latency stillingu. Með Google TV stýrikerfinu og stuðning við raddstýringu er þetta tæki að fara að betrumbæta hvaða stofu sem er.

Ambilight lýsing
Með þriggja hliða Ambilight lýsingu virðist sjónvarpið enn stærra. Tækið litar upp veginn bakvið sjónvarpið í viðeigandi litum og dregur þig þannig enn dýpra í margmiðlunarefnið.

P5 Perfect Picture Engine örgjörvi 
P5 örgjörvinn notar stafræna bestun til þess að auka myndgæði myndefnis um allt að 50%. Niðurstöðurnar eru dýpri svartir litir, skýrari hvítir og meira lifandi, náttúrulegir litir.

Litríkir HDR litir
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.

4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.

Dolby hljóð og mynd
Dolby Vision og Dolby Atmos veita þér raunverulega heimabíó upplifun. Dolby Vision gefur þér skæra og raunverulega liti á meðan Dolby Atmos bætir hljómgæðin og lætur þér líða eins og þú sért í þínum eigin einkakvikmyndasal heima.

Google TV
Google TV er stýrikerfi sem gefur þér greiðan aðgang að heilum heim skemmtunar. Helstu streymisveitur ásamt leikjum, snjallforritum og fleira er að finna í gegnum Play Store.

Google Assistant
Finnurðu ekki fjarstýringuna? Hafðu engar áhyggjur, þú getur auðveldlega stjórnað sjónvarpinu með röddinni þinni með innbyggða Google Assistant talþjóninum. Sjónvarpið er einnig samhæft Amazon Alexa.

Leikjaspilun
Uppfærðu leikjaupplifunina og njóttu þess að spila með skýrum myndgæðum með AMD FreeSync Premium tækni sem bestar hvern ramma í rauntíma með 120 Hz. Auto Low Latency Mode er sjálfkrafa sett á og minnkar það viðbragðstíma tækisins. Njóttu leikja án tafa og hika með Variable Refresh Rate tækni, en HDR Gaming Interest Group Tone Mapping fínstillir HDR stillingar svo þú missir ekki af neinu. Tækið lofar fullkominni sjón í bæði myrkum og ljósum atriðum.

Fjölrýmishljóð með DTS Play-Fi
DTS Play-Fi gerir þér kleift að tengja Philips sjónvarpið við samhæfða hátalara á heimilinu. Með þessari tækni gætir þú skroppið inn í eldhús án þess að missa af neinu, eða spilað tónlist sem heyrist í hverju herbergi.

Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.

Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.

Eiginleikar
Sjónvörp
Strikamerki
8718863037935
Framleiðandi
Philips
Litur
Grár
Orkuflokkur (A til G)
E
Orkunýtniflokkur (HDR)
G
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
61
Orkunotkun á 1000 klst. með HDR (kWh)
128
Skjágerð
LED
Skjástærð (″)
55
Upplausn
4K UHD (2160p)
Upplausn í pixlum
3840 x 2160
Endurnýjunartíðni (Hz)
120 Hz
Skjástærð (cm)
139
Gerð LED lýsingar
Baklýsing
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
P5 Perfect Picture
Birtuskil
Dolby Vision
Viðbragðstími (ms)
10
Stýrikerfi
Google TV
Innbyggður netvafri
Styrkur hátalara
40W
Surround hljóð
Dolby Atmos
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.0
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 5 (802.11ac)
LAN tengi
HDMI útgáfa
2.1
HDMI 2.0 tengi
2
HDMI 2.1 tengi
2
HDMI tengi (samtals)
4
Digital Optical
USB tengi
2
Gervihnattamóttakari
DVB
C,T2,S2
Fylgihlutir í kassa
Borðstandur, fjarstýring, rafmagnssnúra, 2x AAA rafhlöður, leiðbeiningar
Stærð (HxBxD)
78,3 x 122,7 x 25,9 cm
Stærð án stands (HxBxD)
71 x 122,7 x 6,7 cm
VESA veggfestingarstaðall
300 x 200
Þyngd (kg)
22.3
Þyngd án stands (kg)
18.2
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður