Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Razer Kraken V3 Pro þráðlaus leikjaheyrnartól
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Razer Kraken V3 Pro þráðlausu leikjaheyrnartólin leiða þig til sigurs með einstökum eiginleikum. Þau eru með HyperSense Haptic tækni sem breytir hljóði í titring svo þú finnir fyrir umhverfinu í leiknum. Þau eru líka með 50 mm TriForce hátölurum sem varpa 7.1 hringóma hljóm svo þú vitir nákvæmlega hvað er að gerast í leiknum. Seinast en ekki sýst tryggir HyperClear hljóðneminn að liðsfélagarnir heyri skýrt í þér.
7.1 hringóma hljómur
Heyrnartólin eru með 7.1 hringóma hljóm sem dregur þig inn í leikinn og beinir hljóðina á rétta staði í leiknum. Þegar leikurinn er búinn er hægt að nota heyrnartólin til að hlusta á góða tónlist eða horfa á kvikmyndir.
Triforce 50 mm hátalarar
3-í-1 hönnunin tryggir yfirburða hljómburð. Með því að aðgreina lágu, miðju og háu tónana í sama hátalaranum geta heyrnartólin framkallað raunverulegri og skýrari hljóð. Hægt er að sérstilla hljómburð í Razer Synapse 3.
HyperSense Haptic
Heyrnartólin eru með Haptic tækni sem tekur hljóð úr leiknum og breytir þeim í titring, með mismunandi styrk og lengd sem færir leikjaupplifunina á næsta stig.
HyperClear hljóðnemi
Skipaðu liðsfélögunum skýrt með sveigjanlega hljóðeinangrandi hljóðnemanum. Einnig er hægt að sérstilla hljóðnemann í Razer Synapse 3.
Lýsing
Stillanlega Chroma lýsingin gerir þér kleift að velja á milli 16,7 milljón lita á tvemur litasvæðum. Hægt er að velja á milli litmynstra og jafnvel samstilla ljósin við önnur Razer Chroma tæki.
Aðrir eiginleikar
- 3,5 mm jack tengi
- 1,3 m hljóðsnúra
- THX Surround Sound
- Hljóðstýring á heyrnartólum
- Samhæf PC, PlayStation, Nintendo Switch