Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung 32" The Frame QLED sjónvarp (2023)

TQ32LS03CBUXXC
Samsung 32" LS03B The Frame QLED sjónvarpið breytir stofunni í myndagallerí og er tilvalið fyrir leiki. Með Hyper Real Engine og Dual LED ásamt Motion Xcelerator og Auto Low Latency bætir sjónvarpið myndir og leiki.
Full HD QLED snjallsjónvarp
Hyper Real Engine
Tizen stýrikerfi
2x 2.0 HDMI tengi
Veggfesting fylgir
Mattur skjár, listaverkahamur
119.995 kr.
Upplýsingar

Samsung 32" LS03B The Frame 4K QLED snjallsjónvarpið sameinar Quantum Dot tækni með Hyper Real Engine og Dual LED fyrir skarpa mynd með lifandi litum. Með Motion Xcelerator, HDR Gaming Interest Group og Auto Low Latency verður leikurinn betri.

Hvað er The Frame?
Ljósmynd, málverk og snjallsjónvarp, allt í einu tæki.

Hver er tilgangurinn?
Yfirleitt er sjónvarp staðsett þannig að það er sá hlutur í herberginu sem fangar hvað mesta athygli. Minimalískt útlit gerir The Frame kleift að passa snyrtilega í innréttuð rými, betur en venjulegt sjónvarp myndi gera. Svo má náttúrulega ekki gleyma að þetta er vandaðasti og flottasti stafræni myndaramminn á markaðnum.

Málverk þegar þú slekkur á sjónvarpsdagskránni
The Frame hefur þá sérstöðu að þegar ekki er verið að horfa á sjónvarpsefni í því fer það í “Art Mode”. Þannig má segja að þegar “slökkt” er á sjónvarpinu þá þjónar það öðrum tilgangi, sem ljósmynd eða málverk. Birtan er skrúfuð umtalsvert niður til að baklýsingin sjáist ekki og eyðir sjónvarpið aðeins brotabroti af því rafmagni sem þarf til að nota tækið sem sjónvarp. Þess má geta að það er birtuskynjari í tækinu sem ákvarðar birtustigið á myndinni í samræmi við aðstæður.

Það er um þrjá liti af römmum að velja og eru þeir seldir sér. Litirnir eru ljós eða dökkur viður ásamt hvítum. The Frame eitt og sér kemur úr gráum málmi sem rammarnir festast á með segli. Mjög einfalt og þægilegt að skipta um ramma.

Í The Frame fylgja forvaldar myndir í myndasafninu Samsung Collection. Ef þar er ekki að finna það verk sem þú hefur í huga geturðu farið inn á Art Store og keypt þér það verk sem þig langar í. Ef þú vilt nota eigin myndir geturðu niðurhalað þeim úr síma í gegnum smáforrit eða hreinlega með USB lykli.

Hvað fleira þarf ég að vita?
Skjárinn í The Frame er vandaður. Það er engin blæðing eða þess háttar gallar því það myndi auðvitað vera hræðilegt ef þú notar sjónvarpið sem málverk.

QLED tækni
Samsung hefur í fjöldamörg ár verið að þróa QLED tæknina og er hún komin á það stig að sýna myndefni í gæðum sem hefði aldrei verið hægt að ímynda sér áður fyrr. QLED (Quantum dot LED) er samansett af venjulegum LED skjá í samvinnu við QLED filmu. Filman er gerð úr nanokristöllum sem hver sér um að framkalla lit, sem leiðir til meiri nákvæmni og skerpu í litum. QLED tæknin hefur einnig áhrif á sjónarhornið sem sjónvarpið ræður við, en er í rauninni hægt að horfa á tækið úr hvaða sjónarhorni sem er.

Hyper Real Engine örgjörvi
Hyper Real Engine er öflugur örgjörvi frá Samsung sem sér til þess að keyra allt myndefni í Full HD gæðum. Með hámörkuðum afköstum og lifandi litum, tryggir sjónvarpið frábæra upplifun.

Quantum HDR keyrt af HDR10+
HDR, eða High Dynamic Range, er tækni sem sér til þess að litirnir í sjónvarpinu fái að njóta sín sem best. Svartir litir virðast enn dekkri á meðan að hvítir litir verða enn bjartari. Niðurstaðan verður sú að myndir verða enn raunverulegri með fleiri litum, betri litbrigðum og skuggum.

Hannað fyrir leiki
Með Auto Low Latency Mode kveikir sjónvarpið sjálfkrafa á leikjaham til að stytta viðbragðstíma og bæta leikjaupplifun. HDR Gaming Interest Group bætir HDR stillingar svo þú missir ekki af neinum smátriðum og bætir birtuskil.

Tizen stýrikerfið
Samsung The Frame notar Tizen stýrikerfið sem býður upp á fjöldamarga eiginleika. Öll margmiðlun á sama stað og möguleiki á því að bæta við streymisveitum og öðrum snjallforritum.

Eiginleikar
Sjónvörp
Strikamerki
8806094915822
Framleiðandi
Samsung
Litur
Svartur
Orkuflokkur (A til G)
F
Orkunýtniflokkur (HDR)
G
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
27
Orkunotkun á 1000 klst. með HDR (kWh)
49
Orkunotkun þegar slökkt er á tæki (W)
0
Orkunotkun þegar tækið er í reiðuham (W)
0,5
Skjágerð
QLED
Skjástærð (″)
32
Upplausn
Full HD (1080p)
Upplausn í pixlum
1920 x 1080
Endurnýjunartíðni (Hz)
60 Hz
Skjástærð (cm)
80
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
Hyper Real Engine
Birtuskil
Mega Contrast
Viðbragðstími (ms)
8
Stýrikerfi
Tizen
Styrkur hátalara
20 W
Bluetooth
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 5 (802.11ac)
HDMI útgáfa
2.0
HDMI 2.0 tengi
2
Digital Optical
1
USB tengi
2
Gervihnattamóttakari
DVB
C,T,T2,S,S2
Stærð (HxBxD)
727,3 x 451,9 x 143,3 mm
Stærð án stands (HxBxD)
727,3 x 426,8 x 25,5 mm
Þyngd (kg)
5.2
Þyngd án stands (kg)
5.1
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður