Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 32" ViewFinity S60A tölvuskjár
IPS skjár
IPS tæknin tryggir betri sjónvídd, skýrari liti og birtuskil frá hvaða sjónarhorni sem er samanborið við hefðbundna LCD eða VA skjái.
75 Hz endurnýjunartíðni
Skjárinn styður allt að 75 Hz endurnýjunartíðni sem skilar mýkt og nákvæmni í hreyfingum án hiks né tafa.
QHD upplausn
QHD upplausn (2560 x 1440p) er með u.þ.b. 1,8 sinnum fleiri pixla heildarfjölda pixla samanborið við Full HD 1080p upplausn. Myndin er því mjög skýr og flott.
HDR (High Dynamic Range)
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.
Minna álag á augun
Skjárinn er TUV vottaður með Intelligent Eye Care. Skjárinn minnkar því álag á augun með því að aðlaga sig að umhverfi sínu og stilla til bæði birtu og liti sjálfkrafa. Einnig er hægt að stilla á Eye Saver Mode sem verndar augun fyrir bláljósi.
Hröð svartíðni og AMD FreeSync
AMD FreeSync tækni samstillir tölvuskjá við skjákort ef tölvuskjárinn styður tæknina fyrir enn betri myndvinnslu. Leikir og kvikmyndir líta einstaklega vel út á skjánum og hægt er að stilla á leikjastillingu til að auka getu skjásins við leikjaspilun.
Auto Source Switch
Ef þú tengir tæki við skjáinn finnur skjárinn sjálfvirkt hvaða tengi er í notkun og stillir sig inn á það tengi sem sparar þér að þurfa að leita að réttri stillingu.
Stillanlegur
Hægt er að stilla hvernig skjárinn snýr, hvernig hann hallar og einnig er hægt að veggfesta hann með VESA 100 x 100 veggfestingu.