Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 55" S94C OLED sjónvarp (2023)
Samsung 55" S94C OLED sjónvarpið færir næstu kynslóðar mynd- og hljómgæði á heimilið. Með OLED skjátækninni, Neural Quantum 4K örgjörva, Dolby Atmos og fjölda eiginleika fyrir mynd, hljóð og leiki er S94C afbragðs kostur.
OLED tækni
OLED sjónvörp eru með frábær myndgæði og mun þynnri en LCD sjónvörp. Tæknin býður upp á einstaklega djúpa dökka liti og litróf sem aðeins OLED skjár getur gefið kost á.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.
Neural Quantum Processor 4K
Nýjasta tækni Samsung notar 20 gervigreindar knúin kerfi (e. Neural Networks) til að fínstilla hljóð og mynd. Örgjörvinn hámarkar birtustigið sjálfkrafa, eykur birtuskil, gerir raddir skýrari miðað við önnur bakgrunnshljóð og hækkar upplausnina í ótrúleg 4K myndgæði.
Quantum HDR OLED
Quantum HDR OLED tæknin tryggir nákvæmari og raunsærri liti og meiri birtuskil. Dynamic Tone Mapping tryggir að þú missir ekki af einu smáatriði.
Dolby Atmos
Háþróuð Dolby Atmos tækni er með 2 + 1 rása hátalarakerfi sem leikur raunverulega eftir hvaðan hljóðin berast, hvort sem það eru hvísl eða hávaðasamar sprengingar.
Tizen stýrikerfi
Tizen snjallkerfið er fjölhæft, fljótt og notendavænt. Tizen veitir þér mörg mismunandi snjallforrit (e. apps), hannað til að einfalda aðgengi að uppáhalds efninu í Samsung sjónvarpinu þínu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar eru fáanleg með nokkrum smellum á fjarstýringunni.
Aðrir eiginleikar
- - Smart Hub
- - SmartThings
- - Raddstýring
- - AMD FreeSync Premium
- - Ambient Mode+
- - Microsoft 365