Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti
-13%
Tækifæri

Samsung 65" QN800B 8K NeoQLED sjónvarp (2022)

QE65QN800BTXXC
Upplifðu myndgæði sem aldrei fyrr með Samsung 65" NeoQLED QN800B tækinu. Það býr yfir 8K myndgæðum og hefur mínimalíska hönnun ásamt því að vera útbúið Neo Quantum Dot örgjörva og Quantum Matrix Pro tækni. Tækið styður allt að 120 Hz endurnýjunartíðni og hentar einstaklega vel til bæði kvikmyndaáhorfs og tölvuleikjaspilunar.
120Hz 8K UHD NeoQLED snjallsjónvarp
Samsung Neo Quantum Processor 8K
Tizen stýrikerfi
1x 2.1, 3x 2.0 HDMI tengi
400 x 300 VESA
Quantum HDR 2000, 100% Color Volume
529.994 kr.459.994 kr.
Upplýsingar

Samsung NeoQLED 8K QN800B snjallsjónvarpið færir þér hreinlega ótrúleg myndgæði beint heim í stofu. Tækið tryggir frábæra upplifun með Quantum Matrix Pro tækni, Neo Quantum Processor 8K, 100% Color Volume með fleiru. Object Tracking hljómur býr til ríkulegan þrívíddar hljóm og Tizen snjallstýrikerfið sér um að halda skemmtuninni í hámarki með streymisveitum, leikjum og fleira.

8K Ultra HD myndgæði
8K er næsta kynslóð myndgæða. Með 8K (7680 x 4320 pixlar) upplausn fjórfaldast fjöldi pixla, rétt eins og þegar 4K tók við af 1080p. Niðurstaðan er enn skarpari mynd og dýnamískari sjónvarpsupplifun. Í tækinu keyrir 100% Color Volume í samstarfi með Quantum Dot tækni til þess að afkasta milljörðum litatóna sem gefa myndinni nýtt líf.

Quantum Matrix Pro tækni
Mini LED tæknin sem finnst í NeoQLED veitir áhrifamikinn styrk með ofureinbeittu ljósi og ótrúlega djúpum svörtum lit. Þessi nýstárlega og framsækna tækni er keyrð af öflugum örgjörva og veitir framúrskarandi 8K myndgæði með allt að 1,5 sinnum fleiri ljóssvæði en önnur Quantum Matrix sjónvörp.

Samsung Neo Quantum Processor 8K
Örgjörvinn er keyrður af gervigreind sem greinir myndefnið á skjánum og notar djúptauganet til þess að aðalaga birtustig, birtuskil, skerpu og fleira að því sem er að gerast. Örgjörvinn getur einnig skalað myndefni upp í 8K gæði, þrátt fyrir að vera upprunalega í lægri myndgæðum.

HDR10+
HDR10+ (High Dynamic Range) skilar enn nákvæmari litum og dýpri birtuskilum og Dynamic Tone Mapping er tækni sem gerir jafnvel smæstu smáatriðin enn skýrari.

Object Tracking hljómur 
Með 4.2.2 rása innbyggðum hátölurum eltir hljóðið viðfangsefnið á skjánum. Með þessari tækni getur þú upplifað þrívítt hljóð sem dregur þig enn dýpra ofan í myndina og veitir þér raunverulegra hljóð. Gervigreind í tækinu sér einnig til þess að greina umhverfishljóð í kringum þig og aðlaga hljóðstyrkin að því.

Tizen
Tizen snjallkerfið, fyrir nettengingu og tengingu við netforrit. Hannað til að einfalda aðgengi að uppáhalds efninu í Samsung sjónvarpinu þínu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar eru fáanleg með nokkrum smellum á fjarstýringunni.

Öflugri leikjaspilun
Motion Xcelerator Turbo Pro hækkar endurnýjunartíðni tækisins upp í 120 Hz við 4K myndgæði sem gerir upplifunina enn betri. AMD FreeSync Premium Pro og Auto Low Latency Mode bætir upplifunina enn frekar með enn lægri viðbragðstíma og HDR stuðning.

Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.

Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.

Eiginleikar
- 8K myndgæði og uppskölun
- Ambient Mode +
- AMD FreeSync Premium Pro
- Motion Xcelerator Turbo Pro
- Game Motion Plus
- Filmmaker Mode
- Quantum Matrix Pro tækni
- Raddstýring með Alexa og Google Assistant
- SmartThings snjallheimilisstuðningur

Eiginleikar
Sjónvörp
Strikamerki
8806094194647
Framleiðandi
Samsung
Litur
Stál
Orkuflokkur (A til G)
G
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
248
Orkunotkun þegar tækið er í reiðuham (W)
0,5
Skjágerð
QLED
Skjástærð (″)
65
Upplausn
8K UHD (4320p)
Upplausn í pixlum
7680 x 4320
Endurnýjunartíðni (Hz)
120 Hz
Skjástærð (cm)
163,9
Gerð LED lýsingar
Baklýsing
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
Samsung Neo Quantum Processor 8K
Birtuskil
Quantum HDR 2000
Stýrikerfi
Tizen
Innbyggður netvafri
Styrkur hátalara
70W
Surround hljóð
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.2
Wi-Fi stuðningur
Já, Wi-Fi 6
Wi-Fi staðall
802.11ax
HDMI útgáfa
2.1
HDMI 2.0 tengi
3
HDMI 2.1 tengi
1
HDMI tengi (samtals)
4
Digital Optical
USB tengi
3
Gervihnattamóttakari
DVB
C,T,T2,S,S2
Fylgihlutir í kassa
Slim One Connect box, One Connect snúra, borðstandur, fjarstýring
Stærð (HxBxD)
89,77 x 144,37 x 29,84 cm
Stærð án stands (HxBxD)
82,84 x 144,37 x 1,69 cm
VESA veggfestingarstaðall
400 x 300
Þyngd (kg)
31.21
Þyngd án stands (kg)
23.31
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður