Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung Galaxy Buds Live heyrnartól - Svört

SMR180NZKAEUB
Samsung Galaxy Buds Live eru alveg þráðlaus heyrnartól sem eru einstaklega þægileg og með virkri hljóðeinangrun svo hægt er að hlusta klukkustundum saman án þess að finna til óþæginda í hávaðasömu umhverfi.
ANC hljóðeinangrun, IPX2
Hleðsluhylki, USB-C
Bluetooth tenging
8 + 21 klst rafhlöðuending
AKG hljómgæði
39.994 kr.
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

Upplifðu lifandi tónlist með Galaxy Buds Live fullkomlega þráðlausu heyrnartólunum frá Samsung. Heyrnartólin eru sérstillt af sérfræðingum AKG og eru sérstaklega þægileg í eyru, jafnvel eftir langan hlustunartíma. Einnig eru heyrnartólin með virka hljóðeinangrun (e.Active Noise Cancelling) sem útilokar utanaðkomandi hávaða svo tónlistin verði enn skýrari og greinilegri. 
Með sjálfvirkri pörun og einföldu viðmóti eru Galaxy Buds Live einstaklega auðveld í notkun.

True Wireless
Galaxy Buds Live býður upp á gæðahljóm án snúru milli heyrnartólanna og spilunarbúnaðarins fyrir meira frelsi og sveigjanleika.

Virk hljóðeinangrun (Active Noise Cancelling)
Útilokaðu óþarfa umhverfishávaða og haltu fullri einbeitingu við uppáhalds þáttinn, tónlistina eða hlaðvarpið með því að kveikja á hljóðeinangruninni. 

AKG hljóð
Galaxy Buds Live eru með 12mm drivers og tveggja átta hátalara fyrir öflugri bassa og bættan skýrleika miðað við forvera sína. Þetta þýðir að þú færð hágæða hljóm þrátt fyrir engar snúrur.

Umhverfishljóð
Galaxy Buds Live er með þrískiptan hljóðnema sem einangrar umhverfishljóð svo að viðkomandi á hinum enda símhringingarinnar heyrir skýrt í þér, jafnvel í mikilli mannmergð eða hávaða.

Umhverfis hljóðstilling
Stundum er gaman að vita hvað er að gerast í kringum þig. Galaxy Buds Live gera þér kleift að nota Ambient Sound stillingu til að heyra hvað er að gerast í kringum þig án þess að þurfa að stöðva tónlistina eða fjarlægja eyrnatappana.

Hönnunin
Einstök lögun Galaxy Buds Live gefur þeim stílhreint útlit og öruggt grip án þess að valda óþægindum. Hönnunin kemur einnig í vegfyrir að hár og gleraugu flækjast fyrir.

Rafhlöðuending
Heyrnartólin eru með allt að 5,5 klukkustunda spilun plús 14,5 klukkustundir aukalega ef hleðsluhylkið er notað þegar kveikt er á hljóðeinangruninni (e.ANC). Samtals 20 tíma spilunartími. Þegar slökkt er á hljóðeinangruninni spila heyrnartólin í 8 klukkustundir eða 29 klst með hleðsluhylkji. Hraðhleðslan gefur þér 90 mínútna hlustunartíma af tónlist eftir aðeins 10 mínútna hleðslu.
Auk þess styður Galaxy Buds Live Qi þráðlausa hleðslu.

Leikjastilling (Game Mode)
Þrátt fyrir að vera alveg þráðlaus þá hafa Galaxy Buds Live heyrnartólin sérstillingu fyrir leiki sem minnkar seinkun á hljóði fyrir enn betri leikjaupplifun.

Full stjórn með einni snertingu
Hægt er að stjórna Galaxy Buds Live með einföldum snertiskipunum á heyrnartólunum, svo þú þarft ekki að taka snjallsímann úr vasanum til að skipta um lag eða stilla hljóðstyrkinn. Þú getur notað snertistjórnun til að gera hlé, spóla til baka og breyta laginu, stjórna hljóðstyrknum og kveikja á umhverfishljóðstillingu.

Einföld tenging
Snjallsíminn þinn greinir sjálfkrafa þegar þú tekur Galaxy Buds Live úr hleðsluhylkinu. Tækin eru pöruð með snertistjórnun og þú getur strax byrjað að hlusta á uppáhalds tónlistina þína. Ef eitt heyrnartól er notað er það stillt sjálfkrafa á Stereo en breytist í Mono þegar bæði heyrnartólin eru notuð. Tónlistin stöðvast svo sjálfkrafa ef bæði heyrnartólin eru fjarlægð.

Innifalið í pakkanum
- Samsung Galaxy Buds Live
- Hleðsluhylki
- Hleðslusnúra
- 2 stk. eyrnatappar og fleira
- Leiðbeiningar

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
8806090486166
Framleiðandi
Samsung
Hentar fyrir
Líkamsrækt
Litur
Svartur
Stærð hátalara (Driver)
12 mm
ANC hljóðeinangrun
Þráðlaus
Tengi
Bluetooth, USB-C
Þyngd (g)
42.2
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður