Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung Galaxy S23 Ultra 512GB snjallsími - Svartur

SMS918B512BLA
Samsung Galaxy S23 Ultra 5G snjallsíminn er fullur af krafti. 6,8" Dynamic AMOLED skjárinn sýnir mjúkar hreyfingar með 120 Hz endurnýjunartíðni, Snapdragon 8 Gen 2 örgjörvinn fer létt með kröfuhörð forrit og 200 MP myndavélin er með allt að 100x aðdrátt.
120 Hz 6,8" QHD+ AMOLED skjár
Snapdragon 8 Gen 2 örgjörvi
512 GB / 12 GB RAM
200/10/10/12 MP myndavélar
Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3
IP68, 45W hraðhleðsla
239.995 kr.
Upplýsingar

Framför. Vegna þín.
Með Galaxy S23 Ultra breytir Samsung leikreglunum. Aftur. Síminn er búinn bestu myndavél Samsung frá upphafi sem tekur upp 8K myndefni og 200 MP myndir, bæði í dagsbirtu og næturmyrkri. Nightography stillingin er orðin enn skarpari. Þannig glatast engar minningar um vetrarnætur. Varðveittu tónleikana, kvöldgöngurnar eða stundir með vinum á kránni með framúrskarandi skerpu og birtuskilum. Einnig er þetta besti síminn frá Samsung til þessa fyrir leikjaspilun. Þökk sé Snapdragon 8 Gen 2 örgjörva, sem er hraðasti örgjörvi í Galaxy síma hingað til, gengur allt smurt fyrir sig og saman með öflugri 5000mAh rafhlöðu heldur síminn sínu striki lengur en nokkrum sinni fyrr. Sérstæða og auðþekkjanlega hönnunin er óaðfinnanleg með rammakenndum útlínum og innbyggðum S Penna. Síminn er þó líka haldgóður og sterkbyggður með bæði IP68 ryk- og vatnsvörn og Armor Aluminium ytra byrði.

Myndavél
Síminn sem geymir öll augnablik. Samsung Galaxy S23 Ultra er með bestu myndavél frá Samsung fyrr og síðar. Aftur. Með aðstoð þróaðari gervigreindar er myndataka orðin töluvert auðveldari. Nú getur þú tekið myndir og myndefni á borð við fagfólk, sama hvaða myndatökuhæfileika þú hefur í dag.

Með fjórum samstilltum bakmyndavélum ertu alltaf klár að taka frábærar myndir frá hvaða sjónarhorni sem er. Myndavélin slær met í megapixlum og dýpt, hvort sem það er telephoto-, ultra-wide- eða hefðbundin myndataka. Einnig er myndavélin búin leysigeisla sem gerir sjálfvirkan fókus nákvæmari. Allir þessir eiginleikar koma saman svo að þú missir ekki af neinu við myndatöku.

200 MP veita ótrúlega skerpu og upplausn
Með feikilegum 200 megapixlum skilar Samsung Galaxy S23 Ultra myndum með gífurlegri nákvæmni. Myndirnar skarta skarpleika og glæsileika sem erfitt er að koma í orð.

Háa upplausnin þýðir meðal annars að hægt er að klippa til myndir og stækka viðfangsefnið töluvert en viðhalda skerpu og smáatriðum myndarinnar.

100x aðdráttur færir þig 100 sinnum nær
Náðu skíðagarpinum á myndband frá toppi tindsins og niður hlíðina og taktu nærmyndir af leikmönnum úr stúkunni. Þú kemst 100 sinnum nær með einstaklega stöðugri linsu sem býður upp á framúrskarandi myndgæði. Fjarlægðir breytast í nærmyndir af stórfenglegum augnablikum auðveldlega með símanum.

Space Zoom eiginleikinn fangar allan hasarinn þó þú sért langt í burtu frá honum.

Tvöföld 3x og 10x optísk aðdráttarlinsa ná einstaklega nákvæmum myndum þegar aðdráttur er notaður.

Allt þökk sé framúrskarandi gervigreindar og enn meiri ljósnæmni en var að finna í S22 Ultra, sem var á sínum tíma með besta aðdrátt í Samsung Galaxy síma.

Með Nightography hefur nóttin aldrei verið bjartari
Dýrindis stundir eiga sér oft stað þegar sólin er sest. Flugeldar, norðurljós og fjörugasti tími teitisins. Að ná myndum af öllum hasarnum getur reynst erfitt í minni birtu, en ekki með Samsung Galaxy S23 Ultra, sem skartar ljósnæmustu myndavélinni frá Samsung hingað til. Nýr og betrumbættur skynjari fangar viðfangsefni að næturlagi fram í fingurgóma sem gerir það auðvelt að ná stórbrotnum myndum.

Portrait Video
Með Portrait Video stillingunni helst fókusinn á þér og vinum þínum. Þetta gefur myndefninu faglegra yfirbragð. Stilltu á Portrait Video og deildu með þér myndböndum sem eru þess virði að deila.

Object Eraser gerir meira með minna
Object Eraser fjarlægir hluti, skugga og jafnvel fólk úr myndunum þínum. Ýttu bara á eða dragðu línu um það sem þarf að fjarlægja og ýttu svo á eyða. Gerist ekki einfaldara!

Single Take
Láttu gervigreindina um verkið. Gervigreindin sér um að taka bestu myndirnar eða myndböndin á réttum stundum, klippir svo til og hægir niður tilþrifamiklar stundir. Skyndilega með einum smelli getur þú deilt með þér stundum sem þú taldir ómögulegt að fanga með myndavél og það með fagmanneskjulegum tilþrifum. Single Take nær bestu og mest spennandi atriðum í mynd með því að sjálfvirkt taka upp myndefni í kringum myndina þína. Útfrá því velur gervigreindin bestu myndirnar og beitir Dynamic Slow-Mo til að hægja á myndefni og vekja upp dramatískari upplifun af viðfangsefninu og atvikinu sem náðist.

Portrait Mode
Til að ná athyglisverðum andlitsmyndum er best að nota Portrait Mode sem nær nákvæmri mynd af manneskjunni en gefur þér svo frelsi til að breyta og bæta. Það er einstaklega auðvelt að ná framúrskarandi myndum og deila þeim með Samsung Galaxy S23 Ultra.

Náðu öllu á myndband í 8K gæðum, jafnvel í myrkrinu
Það er svo auðvelt að missa af þessum fullkomnu augnablikum, sérstaklega þegar það er dimmt. En nú tilheyrir þetta vandamál fortíðinni. Samsung Galaxy S23 Ultra umbyltir möguleikum myndbandsupptöku með 8K myndefni og róttækum ljósnæmum skynjara. Með OIS tækni haldast myndbönd stöðug og skýr. Einnig verður maður gagntekinn af myndefninu þar sem síminn notar 12-bit HDR sem framkallar 60.000.000.000 liti. Það er 64 sinnum meiri geta en 10-bit HDR.

Auto Framing
Ertu að reyna að ná viðfangsefni á hreyfingu? Ekkert mál með Auto Framing sem aðlagar myndavélina eftir viðfangsefninu og heldur því alltaf í mynd. Hljóðneminn mun einnig elta viðfangsefnið fyrir líflegra og viðburðaríkara myndefni.

Þrívíð greining lyftir sjálfunum þínum á hærra plan
Ljósmyndari að fagi í myndverinu sínu, eða bara þú heima í stofu?  Samsung Galaxy S23 Ultra gerir sjálfurnar þínar enn betri. Með notkun á gervigreind og þrívíðri greiningu á dýpt og stærðum býr myndavélin til ótrúlega flottar andlitsmyndir. Bakgrunnurinn verður móðukenndur (e. bokeh) svo að meiri áhersla er á andlitinu og lýsingu þess.

Öflugur

Rafhlaða sem heldur í við þig og meira en það
Samsung Galaxy S23 Ultra er með 5000 mAh rafhlöðu, einstaklega stór. Ekki er rafhlaðan bara öflug þó heldur einnig snjöll. Rafhlaðan lærir inn á venjurnar þínar og aðlagar sig að þeim til að lengja endingu rafhlöðunnar á einni hleðslu. Að sjálfsögðu er Galaxy S23 Ultra með hraðhleðslu þar sem 30 mínútur veita meira en 50% hleðslu. Einnig er hægt að deila hleðslunni með öðrum með PowerShare.

PowerShare hleðslugjöf
Gefðu með þér með PowerShare. Síminn þinn getur hlaðið síma vinar þíns þráðlaust. Einnig væri hægt að nota PowerShare til þess að hlaða Galaxy SmartWatch snjallúrið þitt. Það gerist sjálfkrafa þegar úrið er lagt á símann og hleður án snúru.

Hraðasti örgjörvi til þessa í Galaxy síma
Geta og afl síma ræðst af mörgum þáttum. Samsung Galaxy S23 Ultra er keyrður á Snapdragon 8 Gen 2 fyrir Galaxy, hraðasti og öflugasti örgjörvi Samsung fyrr og síðar. Meiri afkastageta og styttri svartímar. En ekki er það bara örgjörvinn sem gerir þennan síma hraðan og öflugan. Undirliggjandi hugbúnaður er mjög mikilvægur þáttur í keyrslu símans, sérstaklega hvað varðar upplifun notandans af símanum. Galaxy S23 Ultra er með mörg ráð og lausnir sem bæði eykur hraða, rafhlöðuendingu og nýtni minnisins.

Hröð og áreiðanleg tenging
Samsung Galaxy S23 Ultra nýtir sér 5G tækni til fulls en síminn er líka með Wi-Fi 6E stuðning sem þýðir: hraðara net, meiri streymigeta og leikjaspilun með biðtíma (e. latency) í lágmarki, hvar sem er.

Hönnun með endingu í huga
Óaðfinnanleg, jöfn og slétt hönnun frá skjá til baks. Myndavélarnar eru einnig hannaðar með það að markmiði að síminn í heild sinni rennur saman í eitt. Litir í boði eru svartur, drapplitaður, grænn og ljósbleikur. Fíngerðir litir með skýra framsetningu.

Með Gorilla Glass Victus 2, sem er sterkasta öryggisgler á Samsung síma hingað til, og einstaklega sterkum Armor Aluminium efnivið verða óhöpp örsjaldan að tjóni. Síminn er IP68 ryk- og vatnsvarinn sem ver hann í allt að 1,5 metra dýpi í ferskvatni í allt að 30 mínútur. Ekki er ráðlagt að nota símann í laug eða hafi.

Hönnun

S Pen, penni eða bursti?
Þar sem lyklaborðið nær ekki lengra tekur S Penninn við. Glósaðu á skjáinn hvenær sem er eða vinndu með myndefnið þitt áður en þú deilir því. S Penninn hefur marga eiginleika upp á að bjóða og virkar bæði sem penni og bursti sem opnar upp nýjar leiðir til þess að skapa.

Litrík birta
Samsung Galaxy S23 Ultra er með Dynamic Super AMOLED 2x skjá með allt að 120 Hz endurnýjunartíðni sem gjörbyltir tilfinningu við notkun og birtir liti á glænýjan máta. Hraða endurnýjunartíðnin gefur af sér skilvirka svörun sem gerir notkun tækisins ánægjulega hvort sem það er verið að vafra, hreyfa hluti til eða skrifa skilaboð. Hægt er að nota svo skjáinn hvar og hvenær sem er þar sem skjárinn er svo bjartur að sólarljósið hefur ekki áhrif á skýrleika.

Pláss fyrir minningar
Myndirnar þínar, kvikmyndir og eftirlætis þættir að sjálfsögðu komast allir fyrir á símanum. Samsung Galaxy S23 Ultra er með allt að 1 TB geymslurými svo það þarf aldrei að hætta notkun á eða eyða út hlutum sem þú vilt ekki segja skilið við.

Eiginleikar
Farsímar
Strikamerki
8806094729207
Framleiðandi
Samsung
Fjöldi SIM korta
2
SIM
Dual SIM + e-SIM
Vörutegund
Snjallsími
Litur
Svartur
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Rafhlaða (mAh)
5000
Hraði örgjörva (GHz)
3,36
Chipset
Qualcomm SM8550-AC Snapdragon 8 Gen 2 (4 nm)
Geymslurými (GB)
512
Vinnsluminni (GB)
12
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
6,8
Upplausn í pixlum
3088x1440
Endurnýjunartíðni (Hz)
120 Hz
Birtustig (nit)
1750
Stýrikerfi
Android
Útgáfa stýrikerfis
Android 13, One UI 5.1
Íslenska
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.3
Wi-Fi stuðningur
Já, Wi-Fi 6
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 6 (802.11ax)
Símkerfi
5G
USB
USB-C
Minniskortarauf
Nei
NFC
3,5mm mini-jack tengi
Nei
Corning Gorilla Glass
Victus 2
Staðsetningartækni
GPS,Beidou,Galileo
Vörn (IP staðall)
68
Aflæsing
Fingrafaraskanni
Flass
Myndbandsupptaka
8K@30fps, 4K@60fps, Slow motion: 1080p@960/240fps
Bakmyndavél 1
200 MP Wide (f/1.7, OIS)
Bakmyndavél 2
10 MP Tele1, 10x aðdráttur (f/4.9 OIS, 100x Space zoom)
Bakmyndavél 3
10 MP Tele2, 3x aðdráttur (f/2.4 OIS)
Bakmyndavél 4
12 MP Ultra Wide (f/2.2 AF)
Bakmyndavél 5
Laser fókus
Sjálfumyndavél 1
12 MP (f/2.2, 2PD, AF)
Hleðslutæki fylgir
Nei
Stærð (HxBxD)
163,4 x 78,1 x 8,9 mm
Þyngd (g)
233
Snertiskjár
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður