Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Siemens iQ700 spanhelluborð
Með iQ700 spanhelluborðinu frá Siemens verður auðvelt að elda ljúffengar máltíðir fyrir alla fjölskylduna. Það er með PowerBoost eiginleika, FlexZone fyrir stærri potta og pönnur, FryingSensor Plus og aðra hentuga eiginleika.
Spanhelluborð
Spanhellan notar rafmagnsleiðni til þess að hita í stað hefðbundna aðferða. Botninn á pönnunni/pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta sparar bæði orkunotkun og minnkar hitatap við eldun.
FryingSensor Plus
Snjall skynjari nemur og stýrir hitastigi meðan þú eldar svo kjöt og annar matur nái kjörhitastigi. Veldu helluna sem þú vilt nota og hitastigið og eitt af fjórum hitastigum, þegar pannan hefur náð kjörhitastigi gefur neminn frá sér hljóð. Helluborðið fylgist með og stýrir hitastiginu til að ná fullkomnum niðurstöðum.
Einfalt
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því hvar þú setur pönnuna. Spanhelluborðið finnur sjálfkrafa hvar hún er og þú þarft bara að stilla hitastigið.
PowerBoost
Sparaðu tíman við eldamennskuna. Allar hellur á helluborðinu eru með PowerBoost sem hitar matinn á augnabliki.
ReStart stilling
Haltu niðri takkanum í 4 sekúndur og hellan fer sjálfkrafa í þá stillingu sem hún var í síðast. Hentar vel þegar sömu réttir eru eldaðir aftur.
QuickStart
QuickStart eiginleikinn nemur hvar panna er á helluborðinu og þarf þá einungis að velja hitastigið til að byrja að elda.
Tímastilling
Hvert svæði er með tímastilli sem sjálfkrafa slekkur á hellunni þegar tíminn er liðinn.
Barnalæsing
Öryggið er mikilvægast, sérstaklega með börn í húsinu. Því er þetta spanhelluborð með barnálás sem þú getur virkjað og komið í veg fyrir að börn eða kveiki á eða breyti stillingum á helluborðinu.
Ekki er hægt að nota alla potta og pönnur, þær þurfa að vera úr segulvirkum málmi eins og ryðfríu stáli. Auðvelt að athuga þetta með því að setja segul á botninn og athuga hvort hann helst, ef svo er þá er það áhaldið sem þú getur notað
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og þarf því að hafa samband við fagaðila.